154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:51]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir andsvarið. Já, ég held að almennt sé öruggara að setja ekki öll eggin í sömu körfuna og ég held að það sé fínt að vera með margþættar lausnir sem henta okkur almenningi vel. Ég held að það sé nauðsynlegt neytendamál og samkeppnismál að búa þannig um hnútana að við séum með mjög öruggar greiðslulausnir hér á landi sem eru ekki háðar þessum ytri áhættuþáttum sem ég nefndi í ræðu minni hér áðan. Eins og ég sagði í ræðu minni erum við auðvitað bara eyja sem kúrir einhvers staðar nyrst í Atlantshafi og erum algerlega háð þessum strengjum sem tengja okkur við meginlandið og vegna þess að við erum viðkvæm þá held ég að það sé mjög mikilvægt að við höfum vaðið fyrir neðan okkur og séum minnug þess sem átti sér stað hér 2008 og þeirra áhættuþátta sem vofðu yfir. Ég tel mjög mikilvægt að það sé alveg á hreinu að þessir þættir séu í lagi hér á landi fyrir okkur neytendur og fyrir samfélagið okkar vegna þess að við stólum auðvitað á það á hverjum einasta degi að geta farið út í búð og keypt okkur það sem við ætlum að kaupa. Ég hugsa að ekkert okkar myndi vilja ímynda sér þann veruleika og hvernig samfélagið hér væri ef þetta færi allt saman á hliðina.