Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held líka reyndar að við eigum stórkostleg tækifæri á þessu sviði sem mjög þróað samfélag með miklar ljósleiðaratengingar og líka annað, við erum með eitt uppgjörshús, svokallað „clearing house“, sem er Reiknistofa bankanna og það hefur gefið okkur ótrúleg tækifæri t.d. varðandi netbankana, kröfur í netbanka eiga ótrúlega góðan aðgang að heimabönkum okkar, meira að segja meiri en góðu hófi gegnir, það eru alls konar kröfur sem koma upp sem við báðum ekki um. Þetta tíðkast ekki erlendis. Ég tel að við miðað við smæð samfélagsins þá ættum við að geta fengið mjög örugga og fjölbreytta greiðslumiðlun á grundvelli tækni svo lengi sem við höfum lágan þröskuld fyrir inngang inn á markaðinn með lágu gjaldi og líka að það séu ekki tæknilegar hindranir. Það væri fróðlegt að heyra álit þingmannsins á þessu.
Hún kom líka inn á merkilegan hlut varðandi sérhagsmunina. (Forseti hringir.) Þeir hafa átt ótrúlegan aðgang hérna inn í þingsalinn og við sjáum það í ákveðnum málum, t.d. varðandi landbúnað og breytingar á raforkulögum. Hérna er breytingum laumað í gegn sem enginn átti að taka eftir. (Forseti hringir.) Við skulum vona að við þurfum ekki að fara í þá umræðu í 3. umræðu.