Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Það er auðvitað meginatriði í umsögn Samkeppniseftirlitsins að það verði að tryggja að það sé ekki of hár þröskuldur fyrir aðra aðila að koma hingað inn á markaðinn og það er kannski frumforsenda samkeppni yfir höfuð. Varðandi almannahagsmuni eða sérhagsmuni þá held ég að flestir þessara þátta séu svona meira hættir að koma mér á óvart frekar en hitt, því miður. Ég er, eins og ég sagði áðan, bara nokkuð áhugasöm að sjá hvað meiri hlutinn mun segja og ég ætla að ítreka það að ég væri ofboðslega til í að fá einhvern úr meiri hlutanum hér í þennan sal til að ræða þetta en þau virðast vera upptekin í einhvers konar feluleik hér í þinghúsinu og ég nenni alla vega ekki að fara að leita að þeim.