Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu, gaman að hafa hana hérna inni í þingsal, ekki bara á göngunum. Í greinargerð frumvarpsins segir um þessi gjaldtökumörk, með leyfi forseta:
„Með mörkum á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda er gert ráð fyrir að heimilt verði að setja reglur um hámarksgjaldtöku greiðsluþjónustuveitenda fyrir notkun viðkomandi greiðsluinnviða. Þannig verði með reglum hægt að takmarka kostnað sem lagður verði á viðskiptavini banka vegna millifærslna.“
Ég endurtek: Þannig verði með reglum hægt að takmarka kostnað sem lagður verður á viðskiptavini banka vegna millifærslna. Það er sem sagt vilji meiri hlutans í efnahags- og viðskiptanefnd að fella brott þennan varnagla sem er settur inn til þess að það sé hægt að takmarka kostnað sem lagður verður á viðskiptavini banka og það er rökstutt út frá samkeppnissjónarmiðum. En ef það væru nú skynsamleg samkeppnissjónarmið sem lægju þarna að baki sem væru með einhverjum hætti augljós í þessu tilviki, mætti þá ekki ætla að Samkeppniseftirlitið myndi færa fram þau rök í umsögn sinni? Maður myndi halda það. En lítum á umsögn Samkeppniseftirlitsins, það er löng umsögn. Þar er hvergi vikið að þessu. Maður er eiginlega farinn að hallast að því að þetta hljóti að vera einhvers konar sýndarrök vegna þess að Samkeppniseftirlitið er nú aldeilis duglegt að rísa upp á afturlappirnar þegar hér í þessum sal er verið að setja lög sem eru líkleg til að grafa undan og skaða samkeppni. En hér veit meiri hlutinn betur. Hér vita Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og VG betur en Samkeppniseftirlitið og þykjast vera að verja samkeppni með því að kippa út varúðarreglum fyrir neytendur. (Forseti hringir.) Ég veit svo sem ekki að hverju ég ætti að spyrja hv. þingmann, en hvernig líður henni með þetta? (Forseti hringir.) Hvað heldur hv. þingmanni að meiri hlutanum gangi til? Er þetta handvömm eða er þetta sérhagsmunagæsla?