154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:58]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir andsvarið og þakka honum fyrir hlýja kveðju. Það er vissulega ákveðin upplifun fyrir manneskju sem hefur starfað hér í tæp sex ár, með smá hléi, að fá að koma hérna yfir þröskuldinn. Það er mikill heiður.

Varðandi fyrirspurn hv. þingmanns þá segi ég bara: Ég veit það ekki, ég veit ekki hvað býr hér að baki. Ég væri ofboðslega mikið til í að vita það, en talandi um sýndarveruleika þá virðist mér eins og ríkisstjórnin sjálf sé föst í einhverjum sýndarveruleika, lifi í einhverjum hliðarveruleika eða öðrum veruleika en við hin miðað við framgöngu hennar síðustu daga, miðað við tengslarof hennar við almenning um þessar mundir og miðað við þau mál sem hafa komið hingað. Það koma oft einhverjar hókus-pókus breytingartillögur eða einhverjar breytingar í nefndum sem virðast alla vega ekki ráðast af almannahagsmunasjónarmiðum heldur sérhagsmunum. Það er eitthvað sem við í Viðreisn höfum bent á. Það er eitthvað sem er okkar leiðarstef eins og ég gat um í minni ræðu. Okkar leiðarstef frá stofnun flokksins hefur alltaf verið: Almannahagsmunir framar sérhagsmunum. Þess vegna er grátlegt að sjá þessa meðferð. Ég tek undir með hv. þingmanni að maður hefði ætlað að Samkeppniseftirlitið myndi flagga þessum sjónarmiðum væru þau svona rík, væru þau svona mikilvæg. Það gerði Samkeppniseftirlitið ekki og það ýtir enn frekar undir tortryggni mína þegar kemur að þessari breytingartillögu.