Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Þetta er að verða svolítið kunnuglegt stef í þessu húsi að eftir 1. umræðu um mál og eftir að mál kemur til umfjöllunar í nefnd þá eru gerðar grundvallarbreytingar á því sem eru vitanlega ekki bornar undir umsagnaraðila. Nú gerðist það í umfjöllun um raforkulögin að vakin var athygli á því hér í þingsal í 2. umræðu, og komu svo fram umsagnir í kjölfarið, bæði frá Alþýðusambandi Íslands og Neytendasamtökunum, þar sem varað var sérstaklega við því að opna á það að álver gæti selt orku inn á jöfnunarorkumarkað Landsnets án þess að nein umgjörð væri búin til í kringum það, án þess að sett væri verðþak af neinu tagi eða takmörkun á magni. Það sem gerist þá, eftir að umræðan hafði dregist svolítið á langinn og þessu verði velt talsvert upp og spurninga spurt um þetta í þessum sal, er að nefndin fundar a.m.k. með Landsneti áður en umræðan heldur áfram. (Forseti hringir.) Væri ekki skynsamlegt að mati hv. þingmanns að fara sömu leið í þessu máli nú þegar þessum atriðum hefur verið flaggað, (Forseti hringir.) nú þegar það liggur svo augljóst fyrir að það er enginn sannfærandi rökstuðningur fyrir breytingunni?