154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[23:02]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir þetta andsvar. Ég held að þetta sé nákvæmlega þannig, hér er að teiknast upp einhvers konar mynstur. Við erum ekki að sjá þetta í einu máli heldur alla vega þremur sem ég man eftir í skjótu bragði. Ég bind miklar vonir við að við förum þessa leið þannig að svar mitt er já. Ég tel sannarlega mikilvægt að fara nákvæmlega sömu leið og fá úr þessu skorið. Ég veit að í umræddu máli mætti Landsnet á fund og skýrði betur fyrir þingmönnum hvort áhætta væri til staðar eða ekki varðandi umrætt mál. En ég tel mjög mikilvægt, og ég ítreka það aftur, að fá að leiða hið sanna í ljós í nefndinni og ég ítreka að ef það er svo að þetta er sannarlega eitthvað sem er laumað inn, (Forseti hringir.) þá verður, held ég, góð og djúp umræða um þetta mál hér í 3. umræðu.