Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Umræðuefnið er Seðlabanki Íslands. Ég ætla að segja ykkur litla sögu um afskipti mín af Seðlabanka Íslands. Eins og við kannski munum, í tíð Davíðs Oddssonar sem seðlabankastjóra frá 2005–2009, þá hækkuðu stýrivextir upp í 18%. Þegar Már Guðmundsson tekur við í Seðlabankanum í byrjun árs 2009 tekur hann við búi sem býður upp á 18% stýrivexti. Sá sem stendur hér hefur verið viðriðinn veitingarekstur frá því 1967 og ég hef hitt marga í þeirri atvinnugrein. Einn af þeim mönnum, sem er reyndar fallinn frá, hét Úlfar Eysteinsson og var einn af betri matreiðslumönnum landsins á sínum tíma. Hana átti og rak veitingahús uppi í gamla austurbæ sem kallað er, í Þingholtunum, sem heitir Þrír frakkar — hjá Úlfari. Úlfar sérhæfði sig í því að selja fisk og hann hafði mjög gaman af því að vera með skrýtinn fisk á matseðlinum. Og þegar hinir ýmsu bátar eða togarar komu í land og höfðu veitt fisk sem var mjög sjaldgæfur fóru menn gjarnan til Úlfars og buðu honum fiskinn til kaups og hann keypti þá bara sisvona, setti á matseðilinn og auglýsti.
Það var einhvern tímann í febrúar 2009 sem einhver hafði komið með skrýtinn fisk til Úlfars og Úlfar kallaði á fréttamann frá RÚV til að kynna það fyrirbæri sem hann var með á borðinu og var að fara að elda. Það er til viðtal við Úlfar þar sem hann er að meðhöndla fiskinn og útskýra fyrir fréttamanninum hvaða fiskur þetta er o.s.frv. Þá segir fréttamaðurinn allt í einu við hann: Heyrðu, Úlfar, þú ert með skegg. Hvað er í gangi? Þá segir Úlfar: Já, ég er með skegg og ég ætla hvorki að raka skegg né hár þar til búið er að lækka stýrivexti úr 18% niður fyrir 10%. Ég heyrði þetta viðtal og varð hugsi. Daginn eftir hringdi ég í Úlfar og sagði við hann: Heyrðu, ég ætla að mótmæla með þér. Og ég byrjaði að safna skeggi þarna í miðjum febrúar 2009. Nú, það vissi svo sem enginn af því að við værum að mótmæla háum stýrivöxtum aðrir en ég og hann og kannski nánustu vinir okkar en á þessum tíma var ekki algengt að menn væru með skegg.
En svo er það í byrjun maí að ég er kominn með svona sæmilegt skegg og er að æfa inni í World Class um miðjan dag. Þá er þar ljósmyndari frá Fréttablaðinu sem heitir Gunnar og hann er að taka ljósmyndir af einhverju fólki sem var að fara að sýna myndir af sér, af fólki sem var búið að æfa mikið og var í góðu formi. Hann stoppar allt í einu, snýr sér við og horfir á mig og segir: Tommi, hvað, ertu með skegg? Þá segi ég: Já, ég og Úlfar erum að mótmæla. Ha, mótmæla hverju? segir Gunnar. Nú háum stýrivöxtum. Hvað segirðu? Já, við ætlum ekki að raka okkur, hvorki hár né skegg, fyrr en búið er að lækka stýrivexti niður fyrir 10%. Já, þetta er nú aldeilis frétt, segir Gunnar. Í eftirmiðdaginn hitti ég Gunnar fyrir utan Þrjá frakka í Þingholtunum með Úlfari. Hann tók af okkur myndir og daginn eftir vorum við komnir á baksíðuna á Fréttablaðinu. Fréttablaðið var á þessum tíma mjög vinsælt blað og því var dreift um allan bæ. Það sáu þetta því allir og það stóð stórum stöfum: Úlfar og Tommi mótmæla háum stýrivöxtum. Og þarna vorum við allt í einu orðnir frægir.
Svo var það þannig að Már Guðmundsson seðlabankastjóri var ákveðinn í því að lækka stýrivexti en það gekk svona hægt og rólega; hann gat ekki gert það með einu pennastriki í næstu stýrivaxtalækkun. Þannig að næst þegar stýrivextir voru kynntir var búið að lækka þá um 1% eða kannski 2% í mesta lagi. Og að sjálfsögðu kom mynd af okkur Úlfari á baksíðunni í Fréttablaðinu þegar verið var að lækka stýrivexti um 1% og 2% í einu. Þannig var að allt þetta ár söfnuðum við hári, ég og Úlfar, og alltaf þegar stýrivextir voru hreyfðir voru myndir af okkur. Þá sýndum við hve skeggið hafði vaxið og við urðum æ ófrýnilegri.
Svo er það um miðjan nóvember þegar fer að líða að jólum, þá vorum við komnir með ansi virðulegt skegg og orðnir nokkuð óþekkjanlegir, að ég segi við Úlfar: Heyrðu, nú skulum við fara í jólasveinabúning í desember og við skulum fara í leikskóla Reykjavíkur og við skulum gefa a.m.k. þúsund börnum kerti og spil. Það varð úr að við fengum Icelandair til að gefa okkur spilin og svo var einhver ónefndur aðili, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sem gaf okkur kertin. Við settum þetta í poka og svo hringdum við í leikskólana og við fórum, ég og Úlfar, í jólasveinabúningi, ég man ekki hvort það voru 15 eða 20 leikskólar, en við gáfum alla vega milli 1.000 og 1.200 börnum kerti og spil og þetta vakti mikla athygli. Til gamans ætla ég að segja ykkur frá því að sonarsonur Úlfars var á einum leikskólanum. Við förum þangað og hann var mjög áhugasamur um að strákurinn væri þarna og myndi taka vel á móti afa sínum og svoleiðis. Og við fórum inn og það sem við gerðum alltaf þegar við komum inn í leikskólana — við vorum með staf og vorum með skegg, þurftum ekki að setja það á okkur, og í jólasveinabúningi og svo slógum við stafnum niður og svo sungum við jólasöngva og fóstrurnar hjálpuðu okkur og sungu með. Jæja, við förum í þennan leikskóla sem sonarsonur Úlfars var í, eða dóttursonur hans líklega, já. Nema hvað að það eru engin viðbrögð hjá stráknum. Þegar við komum út var Úlfar miður sín, hann þekkti mig ekki. En til að enda þessa sögu þá sagði barnið við mömmu sína þegar það kom heim: Veistu það mamma, það komu tveir jólasveinar í dag og annar var alveg eins og afi. Þetta var svolítið gaman. Nema hvað við vorum þarna, eins og ég sagði áðan, með skegg og við fórum þarna út um allt og gáfum kerti og spil.
Svo er það fyrri partinn í janúar, eða kannski milli 10. og 15., ég man ekki nákvæmlega dagsetninguna, að þá er ég að klára vaktina í Hamborgarabúllunni uppi á Höfða og klukkan er rúmlega níu að kvöldi til. Þá hringir síminn og það er kallað á mig. Ég tek símann og segi já. Þá heyri ég bara: Ja, góða kvöldið. Þetta er Már Guðmundsson hér. Og ég bara: Vó, hvað er í gangi núna? Já, heyrðu, við ætlum bara að segja þér frá því Tómas að á morgun ætlum við að lækka stýrivexti niður fyrir 10%. Og í tilefni þess þá ætlum við að bjóða þér og Úlfari að koma hér niður í Seðlabanka í anddyrið og við ætlum að gefa ykkur frían rakstur og klippingu. Heyrðu, daginn eftir klukkan níu — af því að fundurinn átti að vera klukkan tíu, þegar þetta með stýrivaxtalækkunina yrði tilkynnt — erum við mættir og ég get sagt ykkur það að það voru allir fjölmiðlar landsins mættir þarna. Sjónvarpsstöðvarnar voru þrjár eða fjórar á þessum tíma. Það voru tímarit og það voru dagblöð. Það voru allir og aðalathyglin var á því að það var verið að raka Tomma og Úlfar í anddyri Seðlabankans. Hann hafði fengið danskan hárskera sem var meistari í því að raka með svona gamaldags sköfu, eins og maður sér stundum í kábojmyndunum. Og við vorum þarna í góðu yfirlæti. Það var settur hvítur dúkur á stólana og borðið og myndir voru teknar og við vorum þarna alveg eins og kóngar. Eftir raksturinn og eftir tilkynninguna um að búið væri að lækka stýrivexti og svoleiðis — við vorum þarna allan tímann og svona fylgdumst með — fór Már með okkur í kynnisferð um bankann og sýndi okkur allt og talaði við okkur og bauð upp á kaffi og var hinn skemmtilegasti. Ég vil segja að ég hafði góða kynningu af Seðlabankanum og það var svolítið gaman að því að Seðlabankinn hefði á þessum tíma þennan húmor að bjóða okkur í þennan rakstur. Ég veit ekki til þess satt að segja að nokkur maður hafi fengið rakstur í anddyri Seðlabankans, hvorki fyrr né síðar, nema í þetta eina skipti.
Ég ætla bara til gamans — þetta er ein besta auglýsing sem ég hef nokkurn tímann á ævinni fengið og er ég nú búinn að fá margar auglýsingar. Hún var frítt og hún var skemmtileg og börnin sem fengu kerti og spil höfðu gaman af þessu og við gáfum fóstrunum að borða og ég veit ekki hvað og hvað. Þannig að mín kynni af Seðlabankanum eru ekki svo slæm. Ég mæli með því að Seðlabankinn hysji upp um sig buxurnar og byrji að lækka stýrivexti því það er ekkert því til fyrirstöðu, og myndi bara gleðja þjóðina, ef Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri myndi bara lækka þá þó ekki væri nema um kannski 0,75%, bara til að sýna lit. Fólkið myndi verða svo ánægt og það myndi fá vonina. Það eru svo margir sem komast langt áfram á voninni, vitandi að það sé byrjað að lækka stýrivexti. Það skiptir Seðlabankann engu máli hvort stýrivextir verði lækkaðir um 0,75% eða ekki en fólkið í landinu, það myndi fyllast bjartsýni. Það er það sem við bíðum eftir, að stýrivextir lækki. Það er ekkert vit í því hvernig þetta er í dag, tóm vitleysa.