154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[23:16]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir skemmtilega sögu, eins og honum er einum lagið. Það er spurning hvort einhverjir þurfi ekki bara að fara að safna skeggi aftur til þess að fá stýrivexti lækkaða. Mig langar í tilefni þessa ákveðna máls sem við erum að ræða hér, sem er einmitt um greiðslumiðlun Seðlabankans, að fá innsýn hv. þingmanns sem hefur jú verið í rekstri í áratugi — sem betur fer ekki orðnar aldir enn þá en áratugir — og man eflaust eins og ég eftir því þegar fyrstu kreditkortin fóru að koma hér og hvernig það var. Margir búðareigendur og margir veitingastaðir og aðrir vildu jú ekki taka við þessum kortum vegna þess að það voru svo mikil þjónustugjöld sem voru tekin, sérstaklega af veitingastöðunum og búðunum og öðrum, fyrir það eitt að vera með möguleika á að borga með korti. Svo var ekki nóg með að menn töpuðu einhverjum prósentum í þjónustugjöld heldur komu peningarnir ekkert fyrr en mánuði seinna. Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins: Þegar hann var í sínum rekstri á þessum tíma, þegar þetta var að koma, hvernig tóku rekstraraðilar því að þurfa allt í einu að vera að borga eitthvert þjónustugjald fyrir að hætta að taka við peningum?