Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir fyrirspurnina og andsvarið. Já, ég man eftir því þegar ég var í Grindavík 1974–1977, í rúm þrjú ár, og sá um félagsheimilið. Þar var náungi sem varð vinur minn síðar sem var að vinna í Landsbankanum. Hann fór að segja mér frá því að það stæði til að það kæmu kort í staðinn fyrir peninga. Mér fannst þetta alveg fáránleg hugmynd, gjörsamlega. En svo smám saman byrjuðu kreditkort að líta dagsins ljós og þau tóku mismunandi þjónustugjald. Verstir voru American Express. Þeir voru með 5%, jafnvel 7%. Það voru margir rekstraraðilar sem neituðu hreinlega að taka American Express en Ameríkanar voru mikið að nota þetta þannig að þetta var svolítið vandamál. Á þessum tíma vorum við að borga milli 2 og 3% í greiðslumiðlunina og eins og hv. þingmaður segir fengum við peningana ekki fyrr en annan og þriðja hvers mánaðar sem gerði það að verkum að þarna voru bankinn og fyrirtækið sem rak kreditkortið bara með fullt af pening sem þeir borguðu enga vexti af og gátu lánað á sama tíma og hirt vextina. Ég man sérstaklega eftir því að ég var mikið í London á þessum tíma og þá voru menn byrjaðir að taka kreditkortin í leigubílum en iðulega, og það er jafnvel enn þann dag í dag, neituðu þeir bara að taka kortin af því að þeir vildu ekki borga 2 og 3%. Svo fór greiðslukortafyrirtækjum að fjölga og smám saman gátum við farið að semja um þessa greiðsluþóknun og hún var kannski komin niður fyrir 1% af því að það voru svo mikil viðskipti. Þetta var kannski að sumu leyti ekki svo slæmt (Forseti hringir.) vegna þess að á þessum tíma var mikið um ávísanir og oft voru ávísanirnar innstæðulausar en þegar menn borguðu með korti (Forseti hringir.) þá var aldrei neitt slíkt vandamál.