Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Mér finnst gaman að hv. þingmaður skuli minnast á Kentucky af því að ég þekki nú eigandann, Helga í Góu sem kallaður er, og hann er svona jaxl. Sagan segir að þegar hann byggði staðinn í Hafnarfirði þá hafi hann grafið grunninn sjálfur með skóflu. Hann var svo sniðugur að hann keypti bara hraðbanka og var sjálfur með bankann inni á Kentucky og sagði við fólkið: Gjörið svo vel og farið þarna og náið ykkur í pening. Þannig að hann fékk kommisjónina greidda. Vissulega verður eitthvað að ske ef greiðsluþóknunin fer að hækka en það verður mjög erfitt í því árferði sem nú er þar sem peningar eru að verða mjög sjaldgæfir. Sem dæmi getur þú hvergi fengið 2.000 kr. seðilinn í dag nema ef einhver á hann í vasanum, af því að þú getur ekki farið í banka og fengið hann af því að bankarnir hirða hann jafnóðum. Þannig að þeir eru að reyna að hætta að vera með seðla eins og þeir lifandi geta.