154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[23:23]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég á því miður ekki eins skemmtilegar sögur og sá hv. þingmaður sem var hér á undan en ég man samt eftir því að byrja að nota slík kort og hversu skrýtið það var að geta allt í einu notað kort í staðinn fyrir peninga. Það sem var sérstaklega þægilegt við að vera kominn með kort, þegar ég var nýorðinn 18 ára gamall og fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna, var að þarna var allt í einu til auðveld leið til þess að ég gæti notað kortið úti í Bandaríkjunum en reikningurinn kom heima á Íslandi. Ég sparaði því mjög mikið við að þurfa ekki að millifæra peninga milli landa og ýmislegt þess háttar.

Greiðslumiðlun er eitthvað sem er orðið alger nauðsyn í dag. Það kom fyrir fund nefndar í fyrra hjá okkur hér á þinginu, ef ég man rétt, aðili frá Seðlabankanum sem benti á það að af öllum viðskiptum á Íslandi í dag eru um 2% af viðskiptunum notaðir seðlar. Restin fer öll í gegnum greiðslumiðlanir. Það sýnir okkur svolítið hvað við erum orðin háð þessum stafrænu greiðslumiðlunum og hvað þær skipta orðið miklu máli. Það er rætt í þessu frumvarpi að mikill áhugi sé hér fyrir því að byggja upp nýja greiðslumiðlun til þess að auka rekstraröryggi ef eitthvað kemur upp á, sérstaklega varðandi fjarskiptaöryggi okkar til útlanda. Ég held nú að ef fjarskiptaöryggi okkar til útlanda færi, hvort sem það væri vegna skemmdarverks, slyss eða netárásar, þá væri margt annað líka sem ætti í erfiðleikum með að virka og ég er ekki viss um að greiðsluþjónusta yrði endilega það sem yrði ofan á þar. Það er nefnilega orðið þannig með flestar vefsíður á Íslandi að mjög margar vefsíður sem við erum að nota eru hýstar erlendis í einhverjum skýjalausnum og það sem meira er þá er oft verið að nota alls konar hugbúnað inni á hverri síðu sem er tengdur erlendis. Oft eru þetta hlutir eins og það að geta fylgst betur með vefkökum og annað og sá hluti vefsins getur verið að nota eitthvað erlendis frá og þar af leiðandi mjög líklegt að flestir vefir á Íslandi muni ekki virka, alla vega ekki mjög vel, ef fjarskiptasamband dettur upp fyrir. Það er líka spurning hvort hlutir eins og heimabankar og annað muni yfir höfuð virka og það er nauðsynlegt að skoða allt slíkt, ekki bara greiðslumiðlunina sjálfa.

Það er líka alltaf spurning hvernig svona greiðslumiðlun er byggð upp. Ég var í námi í Danmörku fyrir rétt rúmum 30 árum og þá var það þannig þar að þeir voru með svokallað Dankort sem við getum sagt að sé hálfgerð fyrirmynd þess sem verið er að leggja til hér, vegna þess að það var greiðsluþjónusta með sérstöku korti sem fékk mjög hraða útbreiðslu í Danmörku á þessum tíma og var með lægri gjöldum. En það gerði það líka að verkum að það voru fjöldamargar búðir sem tóku ekki við Visa eða Mastercard, heldur bara við Dankort. Sem betur fer gat maður fengið svoleiðis ef maður var með danskan bankareikning, sem ég var með þegar ég var í námi.

Það er líka áhugavert að sjá hvernig þetta hefur þróast víða um heim. Nú hef ég eytt mikið af mínum tíma í þróunarlöndum, sérstaklega í Afríku, þar sem staðan er sú að 90–95% af fólki eru ekki með bankareikning, eru hreinlega ekki með aðgang að bankaþjónustu. Þar gilda seðlarnir enn þá og stundum eru þeir hálfverðlausir þannig að þú tekur út það sem kannski eru 50.000 kr. íslenskar og þú þarft að taka stóra tösku með þér fulla af seðlum, af því að stærsti seðillinn er kannski ekki nema 10 kr. virði. Þetta er eitthvað sem er jafnvel enn þá í sumum löndum svolítið það sem er búið við. En það sem hefur gerst allt frá því um 2007 er að þar hefur greiðslumiðlunin algerlega færst yfir í það að vera gerð í gegnum síma. Það var sem sagt í Kenýa sem símafélagi þar datt í hug að opna á það að þú gætir framsent mínútur í frelsi hjá þér. Ef ég átti 20 frelsismínútur og hitti hv. þm. Tómas A. Tómasson og hann sagði við mig: Ég þarf að hringja, get ég fengið nokkrar mínútur hjá þér — þá var það ekkert mál og ég gat sent honum mínúturnar. Svo gat ég líka farið og keypt mínútur inn í kerfið, þ.e. ég keypti fleiri mínútur inn í frelsið, þannig að mínútan var allt í einu orðin að gjaldmiðli. Það sem gerðist var að mínútan festist við ákveðna upphæð, það sem mínútan kostaði, og það allt í einu þróaðist yfir í það að fólk fattaði að það gat verið að senda í rauninni peninga á milli fólks einfaldlega með því að senda hálfgert SMS á milli símanna. Þetta þróaðist það hratt að innan tveggja eða þriggja ára frá því að þetta kom á markað í Kenýa voru nær allir komnir með svona bankareikning, þ.e. mínútureikning í símanum sínum, og 40% af þjóðarframleiðslu Kenýa var að fara í gegnum þennan gjaldmiðil, í gegnum mínúturnar hjá símafyrirtækinu. Enn þann dag í dag er þetta greiðslumiðlunin í Kenýa og flestöll önnur lönd í Afríku hafa tekið þetta upp sem leiðina til að framkvæma greiðslumiðlun.

Stundum þarf því ekki að líta langt yfir skammt. Þessi einfalda leið til að framselja mínútur í símakerfinu varð allt í einu að greiðslumiðlun og þeim mun auðveldara sem kerfið er, þeim mun betra. Við höfum séð það sem höfum búið erlendis að við búum við ákveðinn lúxus á Íslandi sem er það að geta t.d. millifært peninga í heimabankanum okkar á mjög auðveldan máta, það að geta borgað reikningana okkar í heimabanka. Við lentum í því þegar við bjuggum í Bandaríkjunum að jú, það var hægt að borga reikning í heimabanka en þegar við gerðum það þá prentaðist út tékki, prentaðist út ávísun hjá bankanum sem síðan var send í pósti til þess sem gaf út ávísun. Hugsið ykkur, þá var bakendinn enn þá þannig að það var allt gert í kringum ávísanir. Ég þurfti að skýra út fyrir krökkunum mínum, þegar ég flutti til Bandaríkjanna, hvað þessi hlutur sem heitir ávísun var. Þau höfðu bara aldrei séð það á Íslandi.

Greiðslumiðlunin þróast hratt og við munum sjá mikið af alls konar framþróun og nýsköpun á þessu sviði. Sérstaklega núna eftir að PSD2-staðallinn frá Evrópusambandinu er orðinn virkur munum við eflaust sjá fleiri sparisjóði eins og Indó og við munum sjá fleiri fjártæknilausnir. Vonandi verður betri hluti þessa frumvarps til þess að það gangi betur, en áður en við getum hleypt svona frumvarpi í gegn þarf svo sannarlega að laga þau mistök sem eru í breytingartillögu í nefndaráliti meiri hlutans.