154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

starfsáætlun þingsins.

[10:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Starfsáætlun Alþingis gerir ráð fyrir að fundum Alþingis verði frestað í dag. Eins og flestum ætti að vera kunnugt er ljóst að þingstörfin klárast ekki í dag. Fundir Alþingis munu því standa eitthvað áfram en starfsáætlunin fellur úr gildi frá og með deginum í dag. Þingfundir og nefndafundir verða því boðaðir á þeim tímum sem henta með hliðsjón af stöðunni í þinghaldinu hverju sinni.