Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1218, um styrki til félagasamtaka, og á þskj. 1283, um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra, báðar frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, á þskj. 1416, um þjónustu og úrræði Vinnumálastofnunar sem miðast að ungu fólki sem er ekki í vinnu, virkni eða námi, frá Líneik Önnu Sævarsdóttur, á þskj. 1722, um aðstoð við erlenda ríkisborgara, frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, og á þskj. 1292, um kostnað vegna umsókna um alþjóðlega vernd, frá Njáli Trausta Friðbertssyni.