útlendingar.
Forseti. Enn og aftur óttast ég að þeir þingmenn sem eru að fara að samþykkja þetta mál og styðji það hafi hreinlega ekki lesið það. Þetta mál gengur út á að stytta gildistíma dvalarleyfa, svipta fólk í ákveðnum tilvikum möguleikanum á fjölskyldusameiningu. Hv. þm. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir talar um skilvirkni og mannúð. Hvaða skilvirkni er í því að svipta fólk möguleikanum á sameinast börnunum sínum? Hvaða skilvirkni er í því að stytta gildistíma dvalarleyfa? Eða er það mannúðin? Það er engin skilvirkni fólgin í þessum ákvæðum, bara engin.
Ég vildi bara segja að lokum varðandi þetta mál: Við erum öll sammála um markmiðin. Við viljum auka málsmeðferðarhraða, sýndum reyndar í móttöku flóttafólks frá Úkraínu að það þarf ekki að breyta neinum lögum til þess að afgreiða mál á fjórum dögum að meðaltali. Þessar lagabreytingar snúast ekkert um að auka skilvirkni, þær snúast ekkert um að samræma löggjöfina okkar að öðrum löndum af því að hún er bara mjög ólík á milli landa og þetta hefur ítrekað komið fram. Það jaðrar við að vera óþolandi að heyra fólk endurtaka þetta í sífellu þegar það er hreinlega ekki rétt og þið vitið betur. Við styðjum ekki þetta mál (Forseti hringir.) vegna þess að það vinnur ekki að þeim markmiðum sem stefnt er að og við stefnum öll að (Forseti hringir.) sem eru skilvirkni, mannúð, ábyrg meðferð ríkisfjármuna og betri straumlínulögun í þessum málaflokki.