154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[13:32]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögum um frumvarp til laga um afurðasjóð Grindavíkurbæjar. Þetta er eitt af mörgum frumvörpum sem hafa komið til vegna þeirra hamfara sem hafa átt sér stað í Grindavík og við Grindavík. En þetta er fyrsta frumvarpið sem kemur til vinnslu í atvinnuveganefnd. Þetta mál fjallar fyrst og fremst um það að bæta tjón á matvælum og fóðri. Hér er verið að tala um að það komi til afurðasjóður, ekkert ósvipaður sjóði sem er þekktur, þ.e. Bjargráðasjóði, og með svipuðu vinnulagi. Nefndin fékk til sín þá gesti sem sendu inn umsagnir, þ.e. eina fjóra aðila. Það voru fjórar umsagnir um málið og þær umsagnir eru að sjálfsögðu aðgengilegar á vef Alþingis. Við umfjöllun og meðferð málsins í atvinnuveganefnd komu fram athugasemdir og nefndin tók þær til vinnslu. Við gerum hér fjórar efnislegar breytingar á frumvarpinu og ætla ég að hlaupa létt yfir þær.

Þetta snýr í fyrsta lagi að gildissviðinu, hvar þetta gildir. Í upphaflega frumvarpinu var fjallað um þéttbýlismörk Grindavíkurbæjar en ekki mörk sveitarfélagsins. Þar af leiðandi voru þarna ákveðin fyrirtæki sem þá féllu utan við, sem eru ekki innan þéttbýlismarka Grindavíkurbæjar, og því leggjum við til í nefndinni að miðað verði við sveitarfélagamörk hvað þetta varðar. Sömuleiðis það sem snýr að eigin áhættu: Í frumvarpinu, eins og það kom til okkar, var fjallað um að það yrði bara nefnd sem fjallaði þá bara um það hverju sinni hver eigin áhætta hvers og eins væri. Nefndin leggur til að miðað verði við 10% eigin áhættu og ekki umfram það. Það er þá hægt að ganga út frá því sem ákveðnum fasta í því samhengi. Sömuleiðis er komið að því sem er þá tæknilegs eðlis, sem snýr að því þegar menn sækja um, varðandi það hvernig farið er með þær umsagnir, varðandi þagnarskyldu og annað. Síðan er hér mjög mikilvægt atriði sem snýr að því að sjóðurinn sjálfur verði undanþeginn staðgreiðslu af tekjuskatti og fjármagnstekjuskatti. Framlögin sem koma í sjóðinn koma fyrst og fremst úr ríkissjóði, auðvitað geta einhverjar fjármagnstekjur verið til staðar. En eins og gildir um svipaða sjóði, t.d. um Fiskræktarsjóð og títtnefndan sjóð ÍL-sjóð — þessir sjóðir eru undanþegnir staðgreiðslu og tekjuskatti af fjármagnstekjum.

Aðrar breytingar sem nefndin leggur til eru tæknilegs eðlis og ætla ég ekki að þylja þær upp. Þær hafa heldur ekki nein efnisleg áhrif á frumvarpið í heild sinni. Eins og venja er, þegar fjallað er um mál Grindavíkur, þá sameinast þingið og var engin undantekning á því í atvinnuveganefnd. Þeir sem standa að þessu nefndaráliti eru sá sem hér stendur, Þórarinn Ingi Pétursson, Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson, Eva Dögg Davíðsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, María Rut Kristinsdóttir, Óli Björn Kárason og Tómas A. Tómasson.

Frú forseti. Ég held að ég láti hér staðar numið og vænti þess að hér verði einhverjar umræður í kjölfarið.