154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[13:37]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er ekki alltaf sem það gefst tími til að sitja og ræða við hv. þingmann þannig að ég ætla að nota tækifærið. Ég held að allir hér inni séu sammála um þetta mál og við höfum almennt leitast við að gera það sem hægt er að gera. Mig langar að fara aðeins út fyrir það og ræða þetta bara svona í grundvallaratriðum. Við höfum séð hvernig einstaka hópar eru að lenda á milli skips og bryggju, nokkur prósent kannski af heildarfjöldanum. Það er samt búið að gefa einhvers konar tón um það að meira verði ekki gert, frestir verði ekki framlengdir, ekki keyptar íbúðir af einstaklingum sem áttu húsnæði þarna en enginn var með lögheimili. Það sama á auðvitað við um fyrirtækin. Hér erum við að grípa til nauðsynlegra aðgerða fyrir fyrirtæki sem eru með dýrmæta vöru sem getur skemmst ef það þarf að rýma bæ og ég set ekkert út á það. En það eru líka til annars konar fyrirtæki sem eru í viðkvæmri stöðu, einfaldlega vegna þess að ríkið er búið að samþykkja lög þar sem kúnnahópurinn er keyptur úr bænum, hvattur til að flytja úr bænum. Það er augljóst að það eru engir ferðamenn að koma inn í bæinn. Mig langar að spyrja hv. þingmann um viðhorf hans til þess þegar við erum kannski farin að fara yfir á annað hundrað milljarða, yfir eitt hundrað milljarða, í stuðning í heildina; hvort honum finnist ekki ástæða til þess að velta því fyrir sér hvort við ættum ekki að grípa utan um alla í staðinn fyrir að skilja mjög fámennan hóp eftir fyrir einhverja nokkra milljarða sem við hljótum að geta fundið út úr hérna.