Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hvenær er nóg nóg? Þannig var einhvern tímann spurt. Í þessu samhengi hefur það verið í umræðunni að það eru vissulega aðilar þarna sem sitja eftir. Það eru þá fyrirtæki eins og hárgreiðslustofur eða einhver verkstæði, ég þekki það nú ekki alveg. Eigum við að grípa utan um þau? Það er spurning hv. þingmanns. Ég held að það sé óráðlegt af mér að svara því hver mín tilfinning er þegar maður hefur ekki þær forsendur fyrir framan sig sem snúa að þessu. Nú veit ég að verið er að vinna í annarri nefnd varðandi það hvernig á að taka enn frekar utan um Grindvíkinga. Hvað kemur til þar þekki ég ekki, en þetta frumvarp er að vísu mjög afmarkað og þröngt, fjallar fyrst og fremst um matvæli og fóður. Ef svo er að þarna sitja aðilar eftir — nú held ég að ekki hafi farið fram kostnaðarmat á því hvað það er sem situr eftir. En ég hef ekki trú á öðru en að sú nefnd sem er að fjalla um stærra mál, ég held að það sé í efnahags- og viðskiptanefnd, sé að kanna hvað hægt er að gera fyrir þá aðila sem eftir sitja. Vissulega væri það óskastaða, hv. þm. Logi Einarsson, að við gætum tekið utan um alla og hjálpað þeim áfram. En við þekkjum það líka úr okkar kjördæmi, Norðausturkjördæmi, þar sem náttúruhamfarir hafa orðið að þar hafa stundum því miður aðilar setið algjörlega eftir. Það er ekkert nýmæli. Við þekkjum það sömuleiðis varðandi snjóflóðin sem voru á Flateyri, þegar þau fóru í höfnina o.s.frv., (Forseti hringir.) hverjir voru tryggðir og hverjir voru ekki tryggðir. Þetta er flókið mál.