154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[13:42]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Vissulega er það flókið og vissulega hafa líka mörg sveitarfélög orðið fyrir náttúruhamförum og áföllum, manntjóni jafnvel sem er nú það hræðilegasta. Það réttlætir hins vegar ekki að við sleppum því að koma þeim til bjargar sem eru nú í vanda. Miklu frekar væri þá að við notuðum þetta sem ákveðin kaflaskil til að láta það ekki gerast aftur að fólk sitji óbætt hjá garði. Það sem hefur slegið okkur sérstaklega við þessa atburði er náttúrlega að þetta er heilt bæjarfélag og þá er ég ekki að gera lítið úr því tjóni sem fólk hefur orðið fyrir t.d. á Seyðisfirði nýlega eða vestur á fjörðum. Það ætti að vera okkur umhugsunarefni hvort við hreinlega höfum brugðist í því að breyta lítils háttar lagaumgjörð þar til þess að mæta fólki.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann viti til þess að það hafi verið kortlagning og hversu langt hún er komin á atvinnulífi sem er utan þessara marka sem frumvarpið nær til. Hv. þingmaður sagði að þetta væri afmarkað og þröngt og þetta snerist um matvæli og fóður og ég spyr: Af hverju takmarkast aðstoðin við matvæli og fóður? Hvað liggur þar á bak við? Er eignarrétturinn eitthvað dýrmætari þegar þú ert að sýsla við verkun á fiski heldur en ef þú ert að reka byggingarfyrirtæki eða hárgreiðslustofu eða veitingarekstur? Á endanum verður þetta alltaf siðferðileg og heimspekileg spurning um hvað gerist í því tilfelli þegar svæði verður óbyggilegt og hið opinbera eyðir miklu fjármagni bara við að hvetja fólk til að flytja í burtu, tímabundið a.m.k.