Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Nú hefur verið unnin ákveðin skýrsla á vegum Deloitte til að ná utan um þetta og þá skýrslu fékk ég ekki, því miður, en ég kem til með að kynna mér hana. Eins og ég sagði áðan í mínu fyrra andsvari þá er þetta afmarkað og þröngt mál og hér erum við að fjalla um matvæli og fóður. (Gripið fram í.) Ég tek undir með hv. þingmanni að vissulega væri gott að geta tekið utan um alla. Jú, við erum að fjalla hér um atburð þar sem er verið að rýma heilt bæjarfélag og verið er að reyna að koma á móts við sem flesta í þessu samhengi. Það eru aðilar sem sitja eftir. Af hverju sitja þeir eftir? Því miður get ég ekki svarað því. En eins og ég sagði sömuleiðis í mínu fyrra andsvari er hliðstæð vinna í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og við eigum von á nefndaráliti eftir helgi, reikna ég með, og þar fáum við væntanlega frekari svör um það hvernig verður tekið utan um þá sem eftir sitja eða hvort það verði einhverjir sem því miður verða að sitja eftir með sárt ennið. Því get ég bara ekki svarað og mér finnst alltaf betra, þegar maður veit ekki svarið, að vera bara hreinskilinn hvað það varðar. Því miður hef ég ekki svör á reiðum höndum en það sem maður veit er að það er ákveðin vinna í gangi hér innan þingsins um hvernig verður reynt að mæta þessum aðilum.