Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Mig langaði í fyrra andsvari mínu að spyrja hv. þingmann svolítið út í, hvað eigum við að segja — taka það lengra en hv. þm. Logi Einarsson. Hér er verið að setja lög þar sem afurðum, eða matvælaafurðum alla vega, matvælum og fóðri, er veitt ákveðin vernd, getum við sagt. Það er verið að tryggja það að ef rekstraraðilar geta ekki fengið tryggingar til að dekka það sem þeir tapa þegar náttúruhamfarir verða þá komi ríkið inn með þessum sjóði. Þetta hefur dálítið mikið einmitt með þetta tryggingaákvæði að gera, þ.e. þegar þú getur ekki lengur tryggt það sem þú ert að gera þá einmitt er það hlutverk ríkisins að koma þar inn. Við sjáum það t.d. að Náttúruhamfaratrygging Íslands er að gera slíkt fyrir húsnæði. Þú getur ekki labbað inn til tryggingafélagsins þíns og hreinlega fengið húsatryggingu með náttúruhamfaratryggingu vegna þess að þau bjóða ekki upp á það en þú færð hana í gegnum eitthvað sem ríkið er búið að búa til og hérna erum við í rauninni að gera það sama fyrir fyrirtæki. Og þá spyr ég mig: Hefðum við ekki átt að byrja á því alla vega að hugsa út í að þetta gæti dekkað fleiri hluti heldur en bara þá sem eru taldir upp hérna, matvæli og fóður, fleiri hluti sem skipta máli fyrir atvinnurekendur þarna sem geta skemmst ef þeir komast ekki að þeim og ekki er hægt að tryggja á neinn annan máta?