Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og sömuleiðis hið ágæta samstarf í atvinnuveganefnd varðandi þetta mál. Í þessu samhengi erum við að fjalla um, já, afurðir sem ekki er hægt að tryggja. Vissulega er einhver framleiðslutrygging, eins og við þekkjum, hjá fiskeldisfyrirtækjunum. Þau eru með ákveðna tryggingu. Sömuleiðis er fyrirtæki þarna sem við fjölluðum lítillega um í vinnslu málsins sem er að framleiða sæeyru, ef ég man rétt, og svo sem ekki með neina hliðstæðu, er á þróunarstigi. Hvernig grípum við utan um það fyrirtæki? Það gæti verið mjög snúið sömuleiðis. En við erum að reyna að mæta hér þessum grunni sem Grindavík hefur byggst á, þ.e. framleiðslu á matvælum, fiskafurðum fyrst og fremst.
Sömuleiðis erum við að mæta t.d. veitingastöðum sem eru með matvæli, eru að geyma matvæli og gætu hugsanlega verið með sína kæla fulla af matvælum þegar allt í einu kæmi hér þannig að þau gætu ekki bjargað matvælunum. Það kom sömuleiðis fram í umræðum hjá okkur inni í nefndinni að menn hafa verið ótrúlega kvikir og fljótir að grípa til og bjarga verðmætum þegar kemur að því að það þurfi að loka bænum og náttúrlega aðdáunarvert að fylgjast með því. Vissulega er í þessu samhengi ríkið, hið opinbera, að sýna í verki að menn eru að verja þær afurðir og þau verðmæti sem þarna eru svo að viðkomandi aðilar hljóti ekki varanlegan skaða.