Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hv. þingmaður kemur þarna inn á tjón sem bændur hafa orðið fyrir og það er svo sem ekkert nýtt af nálinni. Í því samhengi er til sjóður sem heitir Bjargráðasjóður, sem þetta frumvarp byggist svo sem töluvert á, sömu virkni hvað það varðar. Nú veit ég að hæstv. matvælaráðherra hefur verið að kynna sér til hlítar ekki bara hvað gerðist í þessu sumar- eða júníhreti núna í síðustu viku heldur sömuleiðis hversu mikið er kalið af túnum á þessu svæði. Það vill nú þannig til að stundum þegar hamfarir verða einhvers staðar þá þurfa menn að fá þær allar á sama stað en jafna þær ekki út, nákvæmlega eins og við þekkjum í Grindavík. Þá vakna líka spurningar í þessu samhengi um heildstæða tryggingu, tryggingavernd, og það höfum við oft fjallað um á sviði landbúnaðar sömuleiðis. Við erum ekki með neina heildstæða tryggingavernd. Það þarf alltaf að treysta á það að hið opinbera komi með fjármagn og bæti tjónið. Það er í sjálfu sér, held ég, ekki eitthvað sem við eigum að horfa til að sé endanleg punktstaða, að við eigum bara að hafa það þannig. Við þekkjum það sömuleiðis að tryggingavernd bænda í Ameríku og Bretlandi og víðar, sérstaklega í Bandaríkjunum, er t.d. miklu öflugri en við þekkjum, mun sterkari og öflugri en t.d. í Evrópu. Á þetta þurfum við að horfa en samfélagið og samtakamátturinn hjá okkur tekur utan um þá sem verða fyrir tjóni og við reynum að halda utan um og reynum að bæta tjónið þannig.