154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[13:55]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég taldi mig ekki þurfa að fara í andsvar við hv. þm. Þórarin Inga Pétursson vegna þessa máls sem er í raun og veru mjög sérstakt mál og hluti af þeim aðgerðum sem verið er að grípa til til stuðnings samfélaginu í Grindavík, til stuðnings fyrirtækjum í Grindavík, til stuðnings íbúum í Grindavík. Ég held og fullyrði það að við verðum öll sammála um að afgreiða þetta mál í gegnum þingið og klára fyrir þinglok.

Eins og hv. þm. Logi Einarsson gerði þá langar mig að fara í þann farveg að ræða þessi mál opið og fjalla um það sem er ekki í frumvarpinu en þyrfti kannski að vera í þeim aðgerðum sem þarf að grípa til til að samfélagið, fólkið í Grindavík fari a.m.k. að hluta til með einhverju skaðleysi frá þessum hörmungaratburðum sem hafa riðið yfir samfélagið. Ég get þó haldið aðeins áfram með þetta frumvarp af því að það eru ákveðin atriði sem koma fram í greinargerðinni með frumvarpinu og þar er m.a. þetta að finna, með leyfi forseta:

„Í ályktun bæjarstjórnar Grindavíkur, dags. 14. febrúar 2024, kemur fram að fyrirtæki í Grindavík séu komin að þolmörkum. Þar segir að mikilvægt sé að opna bæinn fyrir aukinni starfsemi til að viðhalda rekstri fyrirtækja með því að hefja rekstur meðan náttúran leyfir. Þá hafa rekstraraðilar bent á, svo hægt sé að halda úti viðunandi atvinnustarfsemi í bænum, að hráefni og afurðir verði að tryggja sérstaklega fyrir óbeinu tjóni. Raunin sé núna sú að rekstraraðilar sem stundi starfsemi í bænum geti átt á hættu að rýming bæjarins valdi því að afurðir og hráefni skemmist og þá geti t.d. rafmagnsleysi af völdum náttúruhamfara í bænum einnig valdið tjóni.“

Mig langar aðeins að staldra við þarna, virðulegi forseti, af því að þegar bæjarstjórn Grindavíkur setti fram þessa ályktun þá voru ekki öll gosin komin. Síðan þá hafa ýmsir alvarlegir atburðir gerst og síðasta gosið sem við fengum að upplifa á þessari Sundhnúkagígaröð var það stærsta sem hefur orðið frá því að þessir atburðir hófust og við vitum svo sem ekkert hvað gerist í framhaldinu. Þarna er verið að tala um að það sé mikilvægt að opna bæinn fyrir starfsemi, en bærinn er bara lokaður. Það er ekki hægt að opna bæinn. Það er ekki hægt að búa í bænum. Það er heldur ekki hægt að reka þjónustufyrirtæki í bæ sem er lokaður, þannig að staðan er í raun og veru mjög alvarleg fyrir þá aðila sem eru háðir því að til staðar séu íbúar.

Síðan voru í þessari ályktun bæjarstjórnar Grindavíkur fleiri atriði nefnd heldur en að það þyrfti að opna bæinn fyrir aukinni starfsemi. Sveitarfélagið hefur m.a. í samvinnu við Verkalýðsfélag Grindavíkur og fleiri aðila bent á atriði sem gætu komið fólki vel sem hefur þurft að selja húsnæðið sitt til Þórkötlu til að koma undir sig húsnæði annars staðar. Af því að það er erfitt að fara af markaði sem er kannski ekki lágur en lægri heldur en fasteignamarkaðir í samanburði, verð á markaðnum er lægra í Grindavík en í sveitarfélögum sem flestir Grindvíkingar hafa verið að flytja til, þá spurði bæjarstjórnin m.a. hvort það væri ekki hægt að skoða úrræði eins og með stimpilgjald af kaupum nýrra eigna annars staðar. Einnig hvort það væri hægt að fara með séreignarsjóð þeirra sem eiga séreignarsjóð á þann hátt að þeir nytu skattfrelsis við úttekt á séreignarsjóði. Margir hafa hreinlega klárað séreignarsjóðinn sinn við kaup í Grindavík og eiga þar af leiðandi engan séreignarsjóð en einhverjir eiga þó séreignarsjóð, sérstaklega eldra fólk sem hefur ekki þurft að nýta hann í íbúðarkaup. Svo var einnig talað um hlutdeildarlánin sem hafa hjálpað mörgum til að koma sér þaki yfir höfuðið. Staðan er reyndar sú að sá sjóður er tómur í dag og ekki er hægt að fá nein hlutdeildarlán vegna þess að það var vanáætlað í þennan málaflokk í fjárlögum fyrir þetta ár. Sveitarfélagið sjálft hefur því verið að benda á ýmis önnur úrræði en þau sem við erum að fjalla um hér í dag, Afurðasjóð.

Ég hef heldur ekki sjálfur upplifað það eða séð það neins staðar í opinberri umræðu að við þyrftum að leggja sérstaklega áherslu á Afurðasjóð. Ég hefði talið að það væru önnur atriði og mikilvægari sem þyrfti að taka á núna í þinglok heldur en að opna þennan sjóð. Þau fyrirtæki sem hafa getað starfað í Grindavík eru örfá og mörg þeirra eru í sjávarútvegi. Mörg þeirra eru hreinlega ekki með mikla vinnslu í landi heldur reka frystitogara sem eru þá í framleiðslu bara um borð í skipunum. Einhver eru með landvinnslu, eins og Vísir og Þorbjörn en við sjáum það bara að m.a. þau hafa gefist upp á starfsemi í Grindavík. Vísir flutti hluta af starfseminni í Helguvík og hefur unnið hráefni sitt þar og við erum að sjá það gerast að Þorbjörn er að gefast upp á landvinnslunni, a.m.k. um sinn, með því að segja upp fólki. Ég er því ekki viss um að þetta úrræði, þótt það sé góðra gjalda vert, sé það úrræði sem samfélagið í Grindavík hefur verið að kalla eftir.

Mig langar líka, virðulegur forseti, að lesa aðeins meira upp úr greinargerðinni með frumvarpinu þar sem segir:

„Samkvæmt lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 55/1992, bætir stofnunin ekki slíkt óbeint tjón, þar sem hún vátryggir aðeins beint tjón af völdum fimm tegunda náttúruhamfara: eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða, sbr. 4. gr. laganna. Um þetta er nánar fjallað í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. reglugerðar um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, 770/2023, þar sem segir m.a.: „Einungis eru greiddar bætur fyrir beint tjón á vátryggðum húseignum, lausafé og mannvirkjum. Vátryggingin bætir hvorki afleitt tjón svo sem rekstrartap, né tjón sem hlýst af því að eign varð ekki notuð á þeim tíma eða með þeim hætti, sem ráðgert hafði verið, auk annars óbeins tjóns.““

Þá komum við m.a. að fyrirtækjum sem var hreinlega lokað með valdboði, fyrirtæki sem voru á svæðum þar sem sprungur komu í ljós, fyrirtæki sem hreinlega skemmdust að hluta af því að sprungur lágu kannski nálægt þeim eða inni í þeim. Þessi fyrirtæki hafa bara ekkert getað starfað frá atburðunum 10. nóvember, með engu móti. Það eru fyrirtæki þarna sem eru heil en þú mátt ekki nálgast þau. Þú mátt ekki nálgast þessi fyrirtæki til að hefja framleiðslu. Náttúruhamfaratryggingarsjóður er ekkert að bæta þetta. Tímabundin lokun fyrirtækja fæst ekki bætt í gegnum náttúruhamfaratryggingarsjóð og þá standa þessi fyrirtæki bara lokuð, eigendur fyrirtækjanna geta ekki nálgast þau og tjón þessara aðila er nú þegar orðið mjög alvarlegt. Margir þessara einstaklinga hafa lagt í að byggja upp fyrirtæki og tekið lán og bera verulegan kostnað af þeim lánum sem hvíla á þessari starfsemi, oft í persónulegum ábyrgðum, og það getur aldrei annað en farið illa þegar ekki fást bætur til þess að standa með þessum aðilum sem vegna staðsetningar fyrirtækjanna geta bara ekki haldið áfram.

Við sjáum ekki, hvorki í þessu frumvarpi né í því frumvarpi sem liggur fyrir efnahags- og viðskiptanefnd, eins og hér var bent á, máli 1130, að það eigi að koma til móts við þessa aðila. Það frumvarp er líka eins og þetta frumvarp góðra gjalda vert. Þar er um að ræða framlengingu á atriðum sem sett voru af stað til að styðja við þá aðila sem voru í atvinnurekstri í Grindavík. Eitt af stóru málunum í því frumvarpi var launastuðningur til þess að viðhalda ráðningarsambandi, að fólk og fyrirtæki myndu halda áfram að viðhalda ráðningarsambandi til að fólk geti þá komið aftur til vinnu þegar þessum atburðum lýkur. Það ráðningarsamband er hins vegar að rofna og hefur rofnað í miklum mæli. Það eru ekki margir sem hafa náð að viðhalda ráðningarsambandi og eins og ég nefndi hér áðan, þegar stórfyrirtæki eins og Þorbjörn hafa slitið ráðningarsambandi þá er þetta úrræði ekki að gera mikið. Þá hefur fólk bara þau úrræði að annaðhvort, ef það er svo heppið, koma sér í aðra vinnu eða það verður hreinlega að sækja um hjá Vinnumálastofnun og fara á atvinnuleysisbætur.

Síðan er auðvitað annað gott úrræði sem hefur verið í þessu, sem er húsnæðisstuðningur. Hann hjálpaði Grindvíkingum verulega sem þurftu að fara með engum fyrirvara úr sínu húsnæði og leigja sér húsnæði annars staðar og því miður oft á mjög háu verði vegna þess að það voru ekki allir mjög siðlegir þegar kom að því að leigja Grindvíkingum og við sáum það að húsaleiga snarhækkaði. Þá kom þetta úrræði sér mjög vel, þessi húsnæðisstuðningur fyrir Grindvíkinga, af því að á ákveðnum tímapunkti voru Grindvíkingar að bera kostnað af tveimur heimilum. Nú á að framlengja þetta en það úrræði er líka að fjara út vegna þess að margir Grindvíkingar eru að festa sér kaup á öðru húsnæði í gegnum uppkaup Þórkötlu á þeirra húsnæði. Þetta er því að fjara út og það er kannski í sjálfu sér ekki slæmt.

Svo er eitt úrræði til viðbótar í þessu sem er hinn svokallaði rekstrarstuðningur eða viðspyrnustyrkir eða hvað á að kalla þetta núna í framhaldinu sem byggir að hluta til á stuðningi við að framleiðsla hafi dregist saman og einnig á fjölda starfsmanna, að hámarki tíu. Það góða við frumvarpið núna er að þú þarft ekki að hafa tapað meira en 20% af framleiðslugetu til þess að fá styrk en áður voru það 40%, þannig að þetta er bæting á frumvarpinu. Það er líka verið að bæta inn í frumvarpið 150 milljónum til að styðja við þessa svokölluðu framkvæmdanefnd sem búið er að samþykkja hér á þinginu og er tekin til starfa. Þetta er bara af hinu góða, að bæjarstjórn eða stjórnsýslan í Grindavík fái aðstoð frá ríkinu til að fara í gegnum alla þá þætti sem þarf að skoða; félagsmálin, menntamálin, innviðauppbygginguna til framtíðar og þess háttar.

Þannig að margt af þessu er bara fínt og við munum að sjálfsögðu styðja alla þessa viðleitni, en það eru göt. Það eru göt sem fólk er að falla í gegnum. Það eru sprungur í þessu. Það eru gjár í þessu og fólk er að detta ofan í þessar gjár, bæði inni í Þórkötlu og í gegnum þessi stuðningsúrræði. Því miður er ég ekki að sjá að það eigi að koma fram einhver þau úrræði sem taka á því að fólk er að falla á milli skips og bryggju. Við höfum alltaf verið að horfa til þess að þegar við gerum eitthvað hér þá reynum við að forðast það að fólk falli milli skips og bryggju en því miður er því ekki til að dreifa hér. Það var t.d. tekin meðvituð ákvörðun um það þegar Þórkatla var sett á laggirnar að skilja ákveðna hópa eftir. Þeir hópar eiga um sárt að binda. Við sáum það bara þegar ákveðið var að framlengja þessi úrræði og umsagnarfrestur var einungis tveir dagar að við fengum inn 40 umsagnaraðila. Það er bara vegna þess að fólk er komið í þá stöðu að það getur ekki meir. Þess vegna kemur þetta sterka ákall til þingsins um að við tökum á málum þessara aðila, sem eru fjölmargir. Það er fullt af litlum fyrirtækjum í Grindavík sem eru bara ekki að fá úrlausn sinna mála og munu að mér sýnist bara leggja upp laupana verði ekkert að gert. Það er miður því að Grindavík hefur verið mjög framsækið og sterkt sveitarfélag þar sem fólk hefur lagt í að reka fyrirtæki og skapa fólki vinnu en þegar dregnar eru tennurnar úr fólki og þeirra eigið fé brennur upp án þess að við séum að koma til móts við það þá fer þetta bara á einn veg: Fólk gefst upp.

Við sjáum það líka gerast inni í Þórkötlu að þrátt fyrir að það sé verið að horfa vítt á málin þá er bara fullt af einstaklingum sem fengu ekki sína hluti bætta í gegnum Þórkötlu. Það finnst mér vera mjög alvarlegt, að við séum að skilja eftir hópa uppi í Grindavík sem eiga húsnæði sem ekki fæst bætt. Við erum líka með félagsleg byggingarfélög eins og Búmenn sem hefðu getað, hefðu þeir fengið sitt bætt í Grindavík, lagt af stað í byggingu á nýju húsnæði og boðið þeim sem voru í þessum úrræðum í Grindavík úrlausn annars staðar. En því miður var ekki verið að horfa á þetta.

Virðulegur forseti. Það er margt sem við þyrftum að gera núna annað en að samþykkja þetta frumvarp sem hér er til umræðu um þennan svokallaða Afurðasjóð. Við þyrftum að bretta upp ermarnar og horfa til þessara hópa sem ekki hafa fengið úrlausn. Hér var sagt í upphafi: Við tökum á þessum sértæku málum þegar rykið fer að setjast. Því miður hefur það ekki verið gert.