154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:15]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða yfirferð yfir það hvað vantar enn þá upp á þegar kemur að því að styðja við Grindvíkinga. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér í því að það sé kannski bara kominn tími á það að við sendum inn skýrslubeiðni þar sem við biðjum um upplýsingar um nákvæmlega hversu margir hafa nýtt sér hinar ýmsu leiðir sem í boði eru en líka hversu margir í rauninni eru að falla á milli skips og bryggju, hvað hafi verið bent á að hafi komið miklar ábendingar frá fólki eða beiðnir um en ekki verið stutt við. Hvort það sé ekki kominn tími til þess að við fáum öll þessi gögn og getum þá talað hér og sýnt hér svart á hvítu hversu margir eru að falla á milli í kerfinu. Það er náttúrlega ólíðandi að við séum ekki að taka jafnt utan um alla og það er eitthvað sem við þurfum að vinna í að mínu mati og ég vona að hv. þingmaður sé sammála mér í því.