Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Jú, ég er sammála hv. þingmanni um að það væri ágætt að fá upp á yfirborðið nánari gögn um hvernig staðan raunverulega er. Ég held að við gerum okkur ekki almennilega grein fyrir því og margir hafa hreinlega haldið að það sé bara búið að redda Grindavík. Þrátt fyrir að uppkaup í gegnum Þórkötlu hafi verið samþykkt á sínum tíma þá voru þau samþykkt með ákveðnum skilyrðum. Þú þurftir að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá uppkaup í gegnum Þórkötlu. Þar réð lögheimilisfesti þannig að ef þú varst ekki búsettur í húsnæðið þá fékkstu það ekki bætt. Þar réð einnig að þú þurftir að vera einstaklingur en ekki lögaðili til að fá það bætt. Í umræðunni hefur þetta verið einhvern veginn þannig að Þórkatla sé búin að samþykkja kaup á 900 íbúðum en eftir standa íbúðir í Grindavík, 200–250 íbúðir. Hv. þingmaður nefndi hér í þingsal í síðustu viku held ég einhverjar tölur sem gætu verið þær tölur sem þyrftu að bætast við til viðbótar ef ætti að koma til móts við þessa hópa. Ég held að það væri bara ágætt að biðja formlega um þær tölur, hvað það kostar að hjálpa þessum aðilum í gegnum Þórkötlu, hvað það kostar að bæta þessar 200 eða 250 íbúðir sem eftir standa og síðan hitt, hvað það kostar að taka á þessum fyrirtækjum sem eru endalaust búin að vera að senda beiðni um aðstoð inn í efnahags- og viðskiptanefnd.