154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:21]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður þekkir almannavarnir miklu betur en ég, hafandi unnið við slíkt í áratugi. Jú, vissulega þurfum við að læra af þessu við en við þurfum líka að fjármagna það. Hvernig við stöndum að almannavörnum gagnvart fólki til framtíðar er einn partur. Síðan er það hvernig við ætlum að fjármagna það sem við þurfum að gera ef slíkt ástand skapast. Við byggðum garð í kringum Bláa lónið eða HS-orku til að verja innviðina fyrir Suðurnes og settum á sérstakt gjald og stofnuðum sérstakan sjóð, einhvern almannavarnasjóð. Hann getur auðvitað verið flottur. Síðan hefur verið nefndur einhver þjóðarsjóður og hugmyndin að fjármögnun á honum var sú að arðurinn af Landsvirkjun ætti að fara í þann sjóð. En þegar maður horfir bara á rekstur ríkissjóðs þá var arðurinn af Landsvirkjun tekinn beint inn í ríkissjóð og svo beðið um meira: Við erum svo blönk í ríkissjóði, getið þið ekki borgað okkur aðeins hærri arð? Þegar staðan er svona erum við ekki að gera nokkurn skapaðan hlut. Við þurfum með einhverjum hætti að gera eins og Norðmenn sem nýta sinn olíusjóð, sinn þjóðarsjóð til fjárfestingar og eiga þá þann sjóð þegar eitthvað bjátar á og m.a. bara til að styðja við eldri íbúa samfélagsins. Ef við værum ekki alltaf í þeirri stöðu að vera alltaf búin að eyða öllum krónum þá gætum við hugsanlega farið að hugsa í þessa veru sem þingmaðurinn er að nefna hér. Það væri besta lausnin ef við ættum einhverjar aðferðir (Forseti hringir.) til að bregðast við og einhverja fjármuni til að nota þegar slíkt ástand skellur á.