Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Mig langar í þessari ræðu aðeins að fjalla um hvernig ég sé fyrir mér næstu skref eftir þær miklu hamfarir sem við erum að ganga í gegnum núna, hvernig ég vil að við reynum að horfa til baka til þeirra aðgerða sem við höfum farið í og hvernig þær aðgerðir myndu leggjast út í framtíðinni. Ég kom að þessu hér í andsvari rétt áðan við hv. þm. Guðbrand Einarsson sem einmitt nefndi að það sé mikilvægt, ef við ætlum að hafa möguleika á því að takast á við hamfarir, að við eigum peninga. Við verðum að hafa tekið frá fjármagn til þess að gera slíkt. Við höfum þegar gert það. Þegar við brunatryggjum húseignir okkar þá er þar skyldutrygging sem fer til Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Þannig fjármögnum við sjóð sem er ætlað að takast á við það þegar húsnæði og lausamunir skemmast í hamförum. Við höfum svo sem byggt þann sjóð upp, kannski fyrir minni hamfarir en þær sem við sjáum í Grindavík en samt sem áður er þar ákveðið módel sem við getum horft á, módel þar sem tekið er eitthvað af þeim sem eiga húseignir til þess að dekka landið hvar sem er — við getum öll lent í hamförum hvar sem er á landinu, það er enginn staður á Íslandi öruggur — þannig að það sé eitthvert öryggisnet sem hjálpar okkur.
Eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson nefndi áðan þá eru göt í þessu neti og við þurfum að horfa á þau. Í vetur þurftum við t.d. alvarlega að íhuga hvað við ætluðum að gera vegna þess að heitavatnsleiðslan frá Svartsengi út á Reykjanes fór í sundur og það gerði að verkum að húshitun um miðjan vetur gat orsakað að það yrðu miklar skemmdir í fullt af húsum á Reykjanesi á óbeinan hátt. Það er eitthvað sem er ekki undir náttúruhamfaratryggingu. Sem betur fer þá tókst með ótrúlegri samvinnu allra á Suðurnesjum að bjarga okkur fá stórtjóni þar. Þá er ég ekki bara að tala um þá sem búa þar heldur líka þá sem störfuðu þar, þar sem farið var í það að koma á nýrri heitavatnsleiðslu yfir nýrunnið hraun — talandi um að vera léttgeggjaður, að hugsa einu sinni út í þá lausn. Nú erum við byrjuð að búa til vegi yfir þessi hraun. Þetta eru hetjur. En það stóð líka allt samfélagið saman. Þegar við vissum að við máttum ekki nota spanhellurnar okkar til að elda þá komu kokkar á veitingastöðunum á Suðurnesjum og sögðu: Við getum verið duglegri en venjulega að láta ykkur fá mat, komið og kaupið af okkur á góðu verði. Allt er þetta dæmi um það hvernig okkur tókst sem samfélagi að gera hluti.
En þetta er gat í netinu, öryggisnetinu, sem við þurfum að finna leiðir til að dekka. Við þurfum að vinna í því að hugsa það til framtíðar. Þegar kemur að fjármögnuninni á öllum þessum mismunandi hlutum — vonandi þurfum við aldrei að kaupa upp húsnæði í heilu sveitarfélagi aftur. Ég held að það gerist kannski á 50 ára fresti, vonandi ekki oftar, en við munum þurfa að kaupa upp einstaka hús og kannski af því að þau eru á hættusvæðum. Við munum þurfa að hjálpa atvinnurekendum að halda sínu starfi áfram. Ég veit að ef við værum að taka örlítið brot af því sem skattlagningu á atvinnurekendur, ef það hækkaði um 0,1% og þeir vissu að það færi í sjóð sem tryggði eitthvað slíkt, tryggði þá gegn slíkum áföllum, þá myndu þeir sennilega ekki kvarta mikið. Nema ef þetta gjald rynni bara beint í ríkissjóð eins og er með marga sjóði. Við erum með ofanflóðasjóð sem við borgum einmitt öll í en hann rennur inn í ríkissjóð og svo er ríkissjóður búinn að vera á haus að byggja upp þær varnir og annað sem þarf með þeim sjóði. Þetta er ekki módel til að fylgja og við þurfum að breyta ofanflóðasjóði og öðrum slíkum sjóðum þar sem peningarnir renna bara beint í ríkissjóð og fara yfir í sjóði þar sem við vitum að við höfum peningana til að gera þá hluti sem þarf að gera. Við þurfum að passa að við höldum fingrum hvers sem er hæstv. fjármálaráðherra, frá hvaða flokki sem hann kemur, frá slíkum sjóðum. Við munum þurfa að upplifa fleiri hamfarir á næstu árum og áratugum en við höfum þurft að upplifa hingað til. Loftslagsváin er ekki eina ástæðan fyrir því. Jarðfræðingarnir okkar eru búnir að segja okkur að við séum að fara að sjá tímabil eldsumbrota á Íslandi. Rétt eins og margt annað í náttúrunni þá kemur þetta í ákveðnum bylgjum. Við erum sem betur fer búin að hafa það nokkuð gott í nokkur hundruð ár, getum við sagt, hátt í 800 ár á Reykjanesi, en við erum að fara að sjá móður jörð vakna.
Ég nefndi áðan að það hefði óvart farið út boð um að Öræfajökull væri að fara að gjósa. Hann á eftir að fara að gjósa og það á Katla líka eftir að gera. Þetta eru hvort tveggja stór eldfjöll sem hafa lagt byggðir í eyði og við þurfum að muna að þetta er það sem við búum við á Íslandi. Þess vegna þurfum við að horfa til framtíðar. Við þurfum að horfa á það hvernig við getum tryggt að nóg fjármagn fari í að tryggja atvinnurekstur og húsnæði og annað og fólk geti fengið þak yfir höfuðið tímabundið þegar það þarf að fara eitthvert frá. Allt þetta þurfum við að horfa á. Þar þurfum við líka að vera tilbúin að horfa á viðbragðsáætlanir sem kalla á það að við bönkum upp á hjá vinum okkar á Norðurlöndum og segjum: Getið þið aðstoðað með einingahús, með þetta, með hitt o.s.frv.? Við erum smáþjóð og megum ekki vera of stolt til að biðja um hjálp þegar við þurfum á henni að halda.
Við þurfum líka að tryggja að við eigum ákveðinn búnað. Það var tilkynnt eftir ríkisstjórnarfund, í gær frekar en í morgun, þetta er allt farið að renna saman í einn dag hjá manni, þessi vika, að ríkisstjórnin hefði veitt almannavörnum leyfi til að kaupa búnað til mögulegrar hraunkælingar. Við sjáum að hraunið er farið að renna upp að varnargörðum og er jafnvel komið jafn hátt varnargörðunum og þá þurfum við að hafa möguleika til að hægja á hraunstrauminum sem er að koma þar yfir. Þar er hraunkæling einn af möguleikunum. Menn geta rifist um hversu afkastamikil hún getur verið en það er alla vega búið að sýna það í öðrum löndum og annars staðar að hægt er að nýta þetta til að leiða hraunið í aðrar áttir. Það er ekki hægt að nota þetta til að stoppa hraunið algerlega en það er hægt að stýra því aðeins hvert það fer. Og viti menn, stór hluti af búnaðinum sem þarf til að takast á við þetta er búnaður sem einnig nýtist við gróðurelda. Við erum búin að sjá mikla gróðurelda, ekki bara við eldgosasvæðið á Reykjanesi heldur höfum við séð þá gerast t.d. í Borgarfirði og á fleiri stöðum. Ég veit að íbúar og sveitarstjórnir á svæðinu, t.d. uppi í Skorradal og á öðrum stöðum, eru virkilega hræddir við það sem getur gerst. Við eigum eina svokallaða þyrluskjólu til að taka vatn upp en þegar þessi tæki eru komin eigum við búnað til að vera með mjög öflugt slökkvistarf með dælum.
Allt eru þetta hlutir þar sem við getum verið að hugsa um margar tegundir af hamförum. Við getum undirbúið okkur undir þær og við getum fundið fjármagnið. Ég treysti því og trúi að íbúar landsins telji það ekki eftir sér að borga eitthvað í svona sjóði svo lengi sem þeir vita að hver sá sem situr í stól fjármálaráðherra er ekki að nota þá í eitthvað annað, heldur að þetta sé þarna tilbúið til notkunar þegar við þurfum á því að halda. Þegar við förum í það að búa til þetta þéttriðnara net öryggis gegn hamförum, sem þarf að taka á öllum þessum hlutum, þá er mikilvægt að við horfum til baka og skoðum hvað við gerðum fyrir Grindavík, skoðum hvað við höfum gert fyrir önnur sveitarfélög sem hafa orðið fyrir hamförum; Seyðisfjörður, Neskaupstaður, Flateyri, Súðavík, Vestmannaeyjar. Við þurfum að horfa aftur á þær lausnir sem við bjuggum til þar. Við þurfum að sjá hvar götin eru í þeim lausnum og við þurfum að passa að við tökum jafnt á öllum sama hvar hamfarirnar verða og sama hvort við erum með skráð lögheimili á einhverjum stað á einhverjum tíma eða ekki, hvort við erum að reka veitingastað, hárgreiðslustofu eða stóra fiskvinnslu.
Við þurfum að læra af þessu öllu saman og ég trúi því og treysti að þá þverpólitísku sátt sem hefur verið í því að styðja við bakið á Grindvíkingum sé hægt að yfirfæra, óháð ríkisstjórnum, óháð flokkunum sem sitja hér inni, áfram til þess að tryggja hag okkar landsmanna eftir hamfarir framtíðarinnar.