Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir fína ræðu hér. Við höfum verið bandamenn í þessu máli alveg frá byrjun og reynt að þoka málum áfram, með misjöfnum árangri þó, kannski vegna þess að við erum ekki við hið háa borð hér á Alþingi.
Mig langar að nota fyrra andsvar mitt til að ræða það sem hv. þingmaður nefndi um þessa sjálfstæðu sjóði, eða svokallaðar sértekjur. Við höfum hagað okkur þannig hér til þess að afla tekna að þegar okkur vantar fjármuni í tiltekin mál þá segjum við: Er ekki bara best að stofna nýjan sjóð? Svo setjum við á eitthvert gjald til að fá pening í þann sjóð. Hv. þingmaður nefndi ofanflóðasjóð og ég hef oft nefnt Atvinnuleysistryggingasjóð, sem hefur verið stóröflugur sjóður. Við getum nefnt Framkvæmdasjóð aldraðra. Ja, ætli það séu ekki sirka 30–40% sem hafa farið í fjárfestingu í hjúkrunarheimilum eins og sjóðurinn var ætlaður til upphaflega. Ég veit að ef við hefðum notað alla þá fjármuni sem fóru inn í þann sjóð til uppbyggingar hjúkrunarheimila þá værum við í allt annarri stöðu en við erum í í dag. Og talandi um forsjálni þá held ég að það sé tímapunkturinn núna, eftir að hafa upplifað þessa áraun sem hörmungarnar í Grindavík hafa lagt á samfélagið, (Forseti hringir.) að stofna sjóð til varnar fólki þegar það lendir í slíkum áföllum og þá sjóð sem við látum vera.