154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:40]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Já, hv. þingmaður snertir á mjög góðum punkti í andsvarinu og það er þessi freistni okkar stjórnmálamannanna að fara í ákveðnar bókhaldsbrellur, eins og ég vil kalla það; nota peninga í vitlausa hluti, nota peninga í aðra hluti en þeir sögðust ætla að gera. Þetta hefur náttúrlega með það að gera að ef við setjum þetta í sérstaka sjóði þá kemur það ekki fram á sama stað í ríkisbókhaldinu. Þegar ríkisbókhaldið gengur vel og allt er í blússandi hagnaði, sem gerist ekkert allt of oft hérna hjá núverandi ríkisstjórn, þá náttúrlega kvartar enginn. En ef við erum í erfiðleikum, eins og er núna, þá er freistnivandinn enn meiri. Við þurfum einmitt að setja rammann til að það sé ekki freistandi að toga peninginn héðan og nota hann í eitthvað annað: Mig langar frekar að bæta við einum ráðherra en að reisa hjúkrunarheimili. Þetta er rosalega auðvelt og það er hægt að taka mýmörg dæmi um mismunandi sjóði og mismunandi hluti sem peningarnir eru settir í. En við verðum að sýna þann þroska sem löggjafi og framkvæmdarvald að leyfa ekki þessa freistni lengur. Við megum ekki leyfa ráðherrum að taka eitthvað úr nammiskálinni bara af því að þeir geta það.