154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:42]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þessi staða sem uppi er hefur ekki bara reynt á samfélagið í Grindavík. Hún hefur líka haft áhrif út á við af því að Grindvíkingar sem flytja þurfa aðstoð annars staðar. Börnin þurftu að komast inn á leikskóla, eldri börnin í skóla, fólkið þurfti húsnæði. Allt þetta reyndi á samfélagið okkar og sérstaklega á sveitarfélögin í kringum svæðið sem þurftu að taka við Grindvíkingum og gerðu það af fúsum vilja. Allir vildu allt gera til að hjálpa samfélaginu. En þetta hefur auðvitað haft áhrif og mig langar aðeins að nefna húsnæðismálin í framhaldinu. Við höfum séð að húsnæðisverð hefur hækkað t.d. á Suðurnesjum vegna mikillar eftirspurnar eftir húsnæði. Það hefur auðvitað áhrif inn í verðbólguna sem gerir það að verkum að lánin okkar hækka. En á sínum tíma þegar gaus í Vestmannaeyjum, fyrir 50 árum síðan, þá datt þáverandi valdhöfum í hug: Förum bara að byggja. Við sjáum viðlagasjóðshverfin svokölluðu úti um allt land. Við sjáum þetta í Sandgerði, ég sé þetta í Reykjanesbæ, þetta er úti um allt land. Hvernig stendur á því og hefur hv. þingmaður einhverjar skýringar á því hvers vegna ekki var brugðist við á sama hátt núna og við gerðum svo vel fyrir 50 árum síðan? Það hjálpaði til við að þrýsta verði upp, hjálpaði til við að koma Vestmannaeyingum í öruggt skjól og gerði það að verkum að núna (Forseti hringir.) stendur uppi úti um allt land fínt og flott húsnæði sem enn er í notkun.