Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Í upphafi þess benti hann á að frá og með nóvember síðastliðnum erum við Íslendingar öll Grindvíkingar. Við höfum þurft að takast á við marga hluti, eins og skólagöngu barnanna. Við höfum þurft að takast á við húsnæðismálin og ég held að það sé stór hluti eftir sem eru geðheilbrigðismálin. Við höfum þurft að takast á við þessar miklu breytingar.
Hv. þingmaður spurði: Af hverju fórum við ekki í sömu húsnæðisaðgerðir og t.d. í Vestmannaeyjum á sínum tíma, byggðum upp hverfi og annað slíkt? Það má ekki gleyma því að við gerðum það í samstarfi við vinaþjóðir okkar. Við vorum ekki of stolt til að biðja um þá hjálp. Ég veit það bara að í samtölum mínum við sendiherra Norðurlandanna á Íslandi þegar ég var í utanríkismálanefnd — þá hittum við þá mjög oft — hafa þeir spurt mig: Hvernig getum við hjálpað? Og ég vísaði þeim á réttu aðilana. En ég held að það sem hafi kannski haft hvað mest áhrif á það að við fórum ekki strax í einhverja slíka vinnu hafi meira að gera með það að ríkisstjórnin var að halda í vonina um að besta sviðsmyndin myndi rætast en ekki sú versta. Sannleikurinn er sá að við þurfum alltaf að búast við því versta en vonast eftir hinu besta.