Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka virðulegum þingmanni fyrir hans góðu ræðu. Ég tek undir margt þar og vil sérstaklega nefna þétt net sérfræðinga sem við höfum haft yfir að ráða, sem betur fer, í þessum náttúruhörmungum okkar í Grindavík og á Reykjanesi. Við búum yfir miklum mannauði og ég vil segja miklu hugviti og grósku í frumkvæði sem hefur einkennt þessi mál, til að mynda þegar Njarðvíkuræðin fór í sundur og við vorum í þessum fimbulkulda með suðumenn, margra komna á eftirlaun, sem sneru til Grindavíkur okkur til aðstoðar og voru einmitt að sjóða saman nýjar lagnir ofan á hrauninu í þeim miklu frosthörkum sem þarna voru. Þeim verður seint fullþakkað fyrir sín störf, svo ég tali nú ekki um alla hina sem koma að þessu máli, eins og píparasveit almannavarna sem fór inn í hús á hættusvæði. Ég held að fólk átti sig ekki alveg á umfangi þessara mikilvægu starfa sem fólk vann fyrir samfélag okkar á Reykjanesi. Þeim verður seint fullþakkað. Þau forðuðu okkur líka frá miklu tjóni, til að mynda í snjóbræðslukerfi heimila og hjá fyrirtækjum þegar þau fluttu tankbíla fulla af heitu vatni frá Hafnarfirði, stanslaust í nokkra daga, til að koma í veg fyrir tjón. Þetta var þrekvirki, svo ekki sé meira sagt, sem á sér engin fordæmi sem hægt var horfa til um hvernig átti að leysa hlutina. Þarna var afreksfólk sem tók sig saman um hvernig væri hægt að bjarga okkur.
Þá kem ég kannski að spurningu minni, hv. þingmaður, um fyrirtækjarekstur til framtíðar í þessu hugvitssamfélagi sem við höfum á Reykjanesi, HS Veitur, HS Orku, og stuðning ríkisins þar inn (Forseti hringir.) með tilliti til náttúruhamfara til lengri tíma. Spurningin er ekki kjörnuð en ég hér varpa ég henni engu að síður fram.