154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:52]
Horfa

Guðný Birna Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanni fyrir hans svör. Ég tel líka mikilvægt að taka það fram í þessum hv. sal að sprungusvæðið undir Grindavík á ekki við um allt Reykjanesið. Það hefur verið misskilningur þar um. Það er alveg verkefni framtíðarinnar að kynna það fyrir fólki að Reykjanesið er öruggt svæði þannig að við séum ekki að ala á ótta og óöryggi, sér í lagi ef við þurfum það ekki, svo það sé sagt. Við þurfum að fara í ímyndarvinnu varðandi fyrirtækjarekstur á svæðinu til framtíðar, það er alveg ljóst. Atvikið með Njarðvíkuræðina var mjög erfitt og leiðinlegt og við þurfum að læra af því, en í okkur er sterkur samtakamáttur og fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Það er svona kjarni Suðurnesjamanna að standa saman og það hefur svo sannarlega verið gert í þessu. Ég fagna því að ríkisstjórnin sé að veita styrki og að við munum ræða um það hér en að mínu mati vantar svolítið framtíðarsýn. Kannski er ég erfið hér inni í þessum sal að krefjast þess í yfirstandandi náttúruhamförum en við erum alltaf að rífa upp sárið með því að vera að tala um ítrekaðar skammtímalausnir. Það er því alveg ljóst að það er bæði hagur atvinnurekenda á svæðinu og íbúa á svæðinu, svo að ég tali nú ekki um Grindvíkinga, að við förum að horfa til langrar framtíðar en ekki til ítrekaðra skammtímalausna.