Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég er hjartanlega sammála því að það er mikill baráttuhugur í Suðurnesjamönnum. Sjálfur er ég það, ætli ég verði ekki að segja með leyfi forseta, sem er í Hafnarfirði kallað aðfluttur andskoti, eins og það er kallað að vera ekki fæddur og uppalinn þar. Ég hef fengið að búa núna í rúmt eitt og hálft ár á Suðurnesjum og finn alveg fyrir þessum sterka anda. Ég held einmitt að það sé mjög rétt sem hv. þingmaður nefndi að við þurfum að veita fólki innsýn í það að jú, það eru hættur á svæðinu en þær eru ekki alls staðar. Það eru líka hættur við að búa í Hafnarfirði, alveg sama hvað hæstv. bæjarstjóri þar segir. Þegar þú keyrir inn í Hafnarfjörð er stórt skilti sem á stendur á ensku, með leyfi forseta: „Town in the lava“, bærinn í hrauninu. Við þurfum að muna hvaðan það kom og að það getur enn þá komið. Hætturnar eru alls staðar en þær skapa líka tækifæri fyrir okkur. Við værum ekki með hitaveitu ef ekki væru eldgos á Íslandi. Við værum ekki með gufu, rafmagnið okkar og allt það, þannig að þetta er að sjálfsögðu ákveðinn ballans sem við þurfum að ná þarna á milli. En ég held eins og hv. þingmaður sagði að við þurfum að fara að horfa fram á við. Þó að við séum enn í miðri á þá þurfum við að horfa fram á við og hugsa um það hvernig við tryggjum það að geta tekist á við áföll framtíðarinnar.