154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:56]
Horfa

Guðný Birna Guðmundsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Með leyfi forseta, langar mig að lesa aðeins upp úr nefndaráliti um frumvarpið sem liggur fyrir:

„Frumvarpið er hluti af stuðningsaðgerðum stjórnvalda vegna jarðhræringa í Grindavík. Frumvarpinu er ætlað að skapa forsendur fyrir öruggari framtíð fyrir Grindvíkinga, en með því er lagt til nýtt stuðningsúrræði til að koma til móts við áhættu rekstraraðila við að halda uppi starfsemi í bænum. Lagt er til að rekstraraðilar sem verða fyrir óbeinu tjóni á matvælum og fóðri vegna hamfaranna geti sótt fjárhagsaðstoð á vegum stjórnvalda, enda verði tjónið ekki bætt með öðrum hætti. Rekstraraðilar í Grindavík taka aukna áhættu með því að halda úti atvinnustarfsemi í bænum. Frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að stuðla að starfsemi í bænum og styðja við rekstraraðila með því að draga úr áhættu þeirra af rekstri í ljósi jarðhræringa.“

Virðulegi forseti. Þetta er gott mál, gott afmarkað frumvarp til að bæta meiri háttar óbeint tjón á matvælum og fóðri af völdum hamfara í bænum, þar með talið vegna rýmingaraðgerða stjórnvalda þeim tengdum. Gott er að fagna því sérstaklega að horft var til athugasemda sem bárust þar sem áður voru í raun útilokaðir rekstraraðilar sem voru staðsettir utan þéttbýlis Grindavíkur, sbr. 2. mgr. 6. gr., en nefndin tók undir þau sjónarmið sem bárust sem komu fram í umsögnum atvinnuteymis Grindavíkurbæjar, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og leggur til að notast verði við skilgreiningu sveitarfélagsins Grindavíkurbæjar líkt og kemur fram í aðalskipulagi þess og er það gott.

Í 1. gr. frumvarpsins kemur fram, með leyfi forseta:

„Lög þessi gilda um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og verða fyrir tjóni skv. 6. gr. á tímabilinu frá og með gildistöku laga þessara til og með 31. desember 2024.“

Þetta er frábærlega gott mál sem er með ákaflega stuttan gildistíma.

Það er sérstakt, frú forseti, að vera hér í þessum aðstæðum sem náttúruhamfarirnar í Grindavík hafa borið með sér. Málefnið er mjög flókið og þetta hefur staðið í langan tíma og enginn veit hversu lengi það mun standa. Það er því sérstakt að úrræðin sem hér eru nefnd í frumvarpinu gilda ekki til lengri tíma.

Í skýrslu Deloitte um kostnaðar- og ábatagreiningu vegna innviða og atvinnulífs í Grindavík kemur fram, með leyfi forseta:

„Virkni á Reykjanesskaga frá árinu 2020 sýnir að nýtt gosskeið sem gæti staðið í tugi eða hundruði ára er hafið. Við hvert eldgos verður sprunguhreyfing í Grindavík. Áframhaldandi kvikusöfnun er í Svartsengi sem hefur verið stöðugt síðan í október í fyrra. Mjög miklar líkur eru á sprunguhreyfingum á meðan þetta ástand varir Að mati Veðurstofu eru engar vísbendingar um að þessi atburður sé að fara að taka enda. Veðurstofan undirbýr sig undir a.m.k. 5-10 ára verkefni.“

Virðulegur forseti. Hér er margt gott gert fyrir Grindvíkinga en í ljósi þess að þessir atburðir virðast engan veginn vera að hætta og með tilliti til íbúa sem eru að fást við áfall mæli ég eindregið með að tekin verði ákvörðun um það til lengri tíma hvernig við getum stutt Grindavík til framtíðar og lagt línur um framtíð bæjarins og starfsemi þar til þess að skapa ró, tryggja fyrirsjáanleika, sérstaklega til stuðnings fyrirtækjum á svæðinu og líta saman til framtíðar fyrir þetta merka sveitarfélag. Við verðum að horfast í augu við það að skammtímalausnir eru ekki nægjanlegar til framtíðar, hér verðum við að horfa til lengri tíma. Þetta er mjög erfiður atburður sem er hér í gangi sem snertir hundruð manna og samfélag okkar allt. Ég fagna þessum afmarkaða styrk, vissulega, sem er gott mál en legg enn og aftur áherslu á framtíðarkortlagningu fyrir Grindvíkinga og verkefni þeirra og styrk til íbúa og fyrirtækja.