154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[15:01]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Við ræðum frumvarp til laga um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar. Markmiðið með frumvarpi þessu er að treysta áframhaldandi starfsemi í Grindavíkurbæ í ljósi óvissuástands vegna náttúruhamfara með því að gefa rekstraraðilum kost á að sækja um fjárhagsaðstoð til að bæta meiri háttar óbeint tjón á matvælum og fóðri af völdum hamfara í bænum, þ.m.t. vegna rýmingaraðgerða stjórnvalda tengdum þeim.

Í frumvarpinu segir, með leyfi forseta:

„Forsætisráðherra skipaði starfshóp um atvinnulífið í Grindavík hinn 19. febrúar 2024. Í hópnum sátu fulltrúar forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, matvælaráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis. Verkefni hópsins var að kortleggja atvinnulíf, aðgengi að Grindavík og þá valkosti sem í boði eru varðandi áframhaldandi rekstur fyrirtækja í Grindavík. Hópnum var gert að vinna upplýsingar fyrir ráðherranefnd um samræmingu mála og í framhaldinu tillögur fyrir ríkisstjórn. […]

Hinn 17. maí sl. kynnti ríkisstjórnin svo tillögur um frekari stuðning við heimili og fyrirtæki í Grindavík. Þær tillögur voru áform um að gefa rekstraraðilum kost á stuðningslánum með ríkisábyrgð auk þess sem lögum um tímabundinn rekstrarstuðning yrði breytt á þann veg að skilyrði yrðu rýmkuð og gildistími lengdur (viðspyrnustyrkir). Þá var upplýst að ríkisstjórnin myndi leggja til að gildistími laga um sértækan húsnæðisstuðning við Grindvíkinga yrði framlengdur til næstu áramóta. Loks var greint frá áformum um framhald á tímabundnum stuðningi til greiðslu launa vegna náttúruhamfaranna til loka ágústmánaðar 2024 og áformum um stofnun sérstaks Afurðasjóðs til að tryggja hráefni og afurðir fyrirtækja í Grindavík gegn óbeinu tjóni af völdum náttúruvár. Í frumvarpinu er fjallað um síðastnefnda atriðið. […]

Með frumvarpinu er lagt til nýtt stuðningsúrræði til að koma til móts við áhættu rekstraraðila við að halda uppi starfsemi í Grindavík í ljósi jarðhræringa og eldsumbrota sem geisa á svæðinu. Komið er á laggirnar fjárhagsaðstoð á vegum stjórnvalda sem rekstraraðilar, sem verða fyrir óbeinu tjóni á matvælum og fóðri af völdum náttúruhamfara, geta sótt um. Með því að láta hinn fjárhagslega stuðning ná til matvæla og fóðurs, eins og hugtökin eru skilgreind í frumvarpinu, er komið til móts við áhyggjur mikils meiri hluta rekstraraðila á svæðinu sem hafa bent á mögulegt óbeint tjón á afurðum sínum af völdum náttúruhamfara.“

Forseti. Þetta er auðvitað mikilvægt mál sem er hluti af stuðningsaðgerðum stjórnvalda vegna ástandsins í Grindavík. Það er nauðsynlegt að grípa fólkið sem á nú um sárt að binda vegna aðstæðna sem það ber enga ábyrgð á, aðstæður sem bara komu og við ráðum ekki við. Fyrirtækin eru mörg hver komin að þolmörkum og það eru íbúar líka. Því fylgir auðvitað mikil áhætta að halda starfsstöðvum gangandi í Grindavík um þessar mundir enda hefur bærinn verið meira og minna lokaður frá því að fyrsta gosið átti sér stað seint á síðasta ári. Ég dáist að þolrifjum Grindvíkinga sem hafa verið fastir í óvissu og óöryggi allt of lengi. Þetta er alveg gríðarlega flókið og risastórt viðfangsefni. Fólk hefur lent í því að tæma séreignarsjóð sinn, sparnaðinn sinn. Lífið hefur verið algjörlega á hvolfi hjá mjög mörgum Grindvíkingum. Maður þekkir það svo sem alveg sem einstaklingur sem alinn er upp úti á landi, ég naut þeirra forréttinda að alast upp úti á landi, að því fylgja mikil lífsgæði. Það fylgir því ákveðið frelsi, tímaleysi, náttúra og samfélag og þau sem þekkja til skilja hversu dýrmætt það er að hafa þetta frelsi. Það er dásamlegt að búa úti á landi. Þetta eru lífsgæði sem kannski finnast ekkert endilega svo glatt á höfuðborgarsvæðinu þó að það sé vissulega gott að búa hér. En þetta er bara öðruvísi líf. Þetta eru öðruvísi lifnaðarhættir og fólk sem kannski hefur fest rætur í bæ eins og Grindavík hefur gert það af einhverri ástæðu. Það er annars konar lífstaktur. Hér í Reykjavík er kannski þeytivindan svolítið hröð en það er ekki alltaf þannig úti á landi. Svo er auðvitað ákveðin samstaða og ákveðinn samfélagslegur skilningur sem fylgir því að búa í smærri samfélögum þannig að það er mikilvægt líka að átta sig á því að auðvitað fylgir því gríðarleg sorg fyrir íbúa Grindavíkur og fyrir þá fyrirtækjaeigendur sem þar hafa fjárfest í sínum rekstri að mega skyndilega ekki vera heima hjá sér.

Forseti. Þessi sjóður sem við ræðum hér í dag er vafalaust ágætur en við vitum að lokun fyrirtækja fæst ekki bætt í mörgum tilfellum. Þar er um að ræða fyrirtæki sem einstaklingar hafa margir hverjir lagt allt sitt í, alúð og aleiguna. Ég get ekki sett mig í þeirra spor en ég hef hitt fyrirtækjaeigendur smárra og meðalstórra fyrirtækja í Grindavík sem lýstu sínum veruleika fyrir okkur í þingflokki Viðreisnar og það var bara þannig í fullri einlægni að þegar ég hlustaði á þeirra sögur og þeirra veruleika, þegar þau voru að lýsa þeim veggjum sem þau voru að lenda á í kerfinu, kerfi sem er auðvitað bara mannanna verk og ekkert annað, þá táraðist ég við að hlusta á þessar sögur. Það var ótrúlega þungt að hlusta á þennan veruleika, vonleysi þeirra og stöðu. Mér finnst vont að upplifa það að kerfið eða stjórnvöld, þrátt fyrir mjög góðan vilja, séu kannski að bregðast þessu fólki og væntingum þess um öryggisnet í aðstæðum sem það bað ekki um í líf sitt.

Það er auðvitað skiljanlegt að hér hefur þurft að bregðast við stöðunni hverju sinni en ég hef áður varpað því sjónarmiði upp, reyndar í umræðu um annað þingmál, mig minnir að það hafi verið í umræðu um fjárauka, og velt upp þeirri spurningu hvers vegna sviðsmyndir voru ekki klárar. Við vorum búin að upplifa jarðhræringar á Reykjanesskaga í þrjú ár, upplifa önnur eldgos sem voru fjarri Grindavík og það voru umræður á sínum tíma um það að þegar svæðið vaknar þá geti alls konar keðjuverkandi hlutir farið af stað. Við spurðum um það hérna í desember, minnir mig, hvort þessar sviðsmyndir hefðu verið til, hvort það væri búið að nýta þessi ár til að undirbúa svörtustu sviðsmyndina. Svartasta sviðsmyndin er að sjálfsögðu sú að hér komi upp eldgos í miðjum bæ eða að það þurfi að rýma heilt bæjarfélag skyndilega og fólk komist ekki aftur heim til sín. Svör þáverandi hæstv. innviðaráðherra voru frekar á þann veg að það væri búið að vera einhvers konar vinna í einhverjum starfshópum en að það væri ekkert endilega komin einhver niðurstaða.

Almennt held ég að við gætum bætt okkur í þessu. Við búum á Íslandi, við búum í landi þar sem það eru fáir skikar á landinu þar sem ekki er um að ræða einhvers konar áhættu þegar kemur að náttúrunni. Við vitum að fyrir vestan eru það snjóflóðin. Mér skilst að Skagafjörðurinn sé svolítið stikkfrír og er stoltur af því að þar er ekki mikið um áhættu af náttúruvá. Við þekkjum auðvitað aurskriður og snjóflóð fyrir austan, eldgos og jarðskjálfta fyrir sunnan og við erum mjög sjóuð í því hér á Íslandi að takast á við þessar aðstæður, við eigum auðvitað frábæra viðbragðsaðila þegar kemur að almannavörnum, björgunarsveitir sem vinna sitt óeigingjarna starf o.s.frv. En við hefðum mátt vera kannski undirbúin. Ég veit alveg að það er ábyggilega ósanngjarnt að koma hér núna og biðja um betri vinnubrögð. En ef við ætlum að horfa til framtíðar þá hygg ég að það sé mikilvægt að læra af þessu og kannski vera búin að teikna upp þessar sviðsmyndir þegar kemur að lagasetningu, þegar kemur að stuðningsúrræðum, þegar kemur að tryggingamálum, að tryggja að fólk falli ekki á milli þilja. Við þurfum að spyrja okkur hvers vegna við séum svona léleg í langtímasýn og gera plön til að eiga þessi öryggisnet til því líkt og ég sagði áðan þá búum við á Íslandi og það er ákveðin óvissuferð að búa hér.

Forseti. Líkt og hv. þm. Guðbrandur Einarsson kom inn á í sinni ræðu fyrr í dag þá eru mörg önnur úrlausnarefni sem vafalaust mættu vera ofar í forgangi ríkisstjórnarinnar en þetta tiltekna mál. Ég tek alveg undir það sjónarmið. Þetta frumvarp er samt hér á dagskrá í dag og við í Viðreisn tökum að sjálfsögðu þátt í umræðu um það og styðjum það mál, enda styður Viðreisn alla viðleitni til að grípa Grindvíkinga. En við höfum samt sem áður mótmælt því harðlega að fólk sé að falla á milli þilja vegna þess að kerfin eru mannanna verk. Þetta er ekki bara einhver fasti sem við höfum enga stjórn á. Þetta eru ákvarðanir sem teknar eru og mér finnst alltaf vont þegar ég verð vitni að kerfum sem eru búin til utan um kerfið en ekki raunverulegar aðstæður fólks. Auðvitað hefur stuðningsnet og stuðningsúrræði ríkisstjórnarinnar gripið mjög marga, ég dreg enga dul á það, en það er samt sem áður þannig að enn er stór hópur sem situr eftir með sárt ennið og veit ekki hvernig hann á að koma sér út úr þessum aðstæðum.

Sagan mun vafalaust fjalla um allar aðgerðir stjórnvalda í þessu skyni. Sagan mun líka dæma okkur hér í þessum sal, hvernig við héldum á málunum. Sagan mun dæma ríkisstjórnina. Við vitum það, þekkjandi annars konar hamfarir sem dunið hafa á íslenskri þjóð í gegnum tíðina að það skiptir öllu máli að hlúa að sárum einstaklinga strax, sálarsárum.

Þá langar mig að ræða aðeins um geðheilbrigðismál og sálræna aðstoð, ekki síst barna. Ég þekki það á eigin skinni að alast upp í þorpi sem þjakað var af sorg vegna snjóflóðs sem þar féll árið 1995. Á Flateyri á þeim tíma var sálrænn stuðningur af skornum skammti og við erum sem betur fer búin að læra mikið af því og umræðan um andlega líðan og um geðheilbrigði hefur sem betur fer færst á betri stað. Á þeim tíma var kannski að einhverju leyti tabú að leita sér hjálpar og fólk keyrði sig svolítið bara áfram á hörkunni. Svo auðvitað komu hinir ýmsu veggir sem gerðu það að verkum að fólk varð að horfast kannski svolítið í augu við áfallið og við sorgina. Ég er viss um það, hafandi talað við marga Grindvíkinga, að þetta áfall sem þau hafa verið að finna fyrir núna í sjö mánuði á eftir að koma að fullu fram. Þau eru enn þá að keyra sig á adrenalíni og óvissu og rykið er ekkert endilega búið að setjast. En þegar áfallið kemur þá er eins gott að við séum hér með stuðningsnet til að grípa þetta fólk.

Þá langar mig í því tilliti að ræða að enn þá hefur okkur ekki tekist að niðurgreiða sálfræðiþjónustu sem er lífsnauðsynleg heilbrigðisþjónusta, rétt eins og það að ef ég stíg hér út úr þingsalnum og dett og fótbrýt mig þá fæ ég aðstoð strax sem er niðurgreidd og ég fæ viðeigandi læknisþjónustu. Ég get ekki skilið hvers vegna sömu lögmál í okkar góða samfélagi gilda ekki um það þegar áföll dynja yfir og þegar við finnum fyrir einhverjum veikindaeinkennum sem eru af geðrænum toga. Ég veit alveg að það hafa verið einhver stuðningsúrræði, einhver niðurgreiðsla á sálfræðitímum fyrir Grindvíkinga og það er mjög jákvætt og það er mjög gott en mig langar líka að ræða aðeins börnin í þessu samhengi. Börn sem hafa verið rifin upp frá sínum rótum, voru vön að fara kannski bara hjólandi í skólann sinn og svo þaðan á íþróttaæfingar eða í aðrar tómstundir, börn sem lifðu í Grindavík og gátu bara verið í sínu frjálsa lífi eins og ég var að lýsa áðan, sem maður þekkir svo vel, hafandi alist upp úti á landi. Það eru bara svolítið önnur lögmál sem gilda þar. Þessi börn voru rifin upp með rótum og dreift um stórt svæði. Það er ekki lengur komið saman kannski eins og var gert í byrjun, vinir sem hittast ekki jafn oft o.s.frv. Þetta tekur ofboðslega á. Hafandi sjálf verið barn í aðstæðum þar sem áföll dundu yfir, hafandi verið kannski vitni að foreldrum sem voru tættir og gátu ekki betur, þá held ég að þetta sé reynsla sem við þurfum að hafa í huga þegar við erum að tala um stuðningsúrræði fyrir Grindvíkinga. Gott og vel, hjálpum fyrirtækjunum, hjálpum matvælaframleiðendum, hjálpum fólki. En mér hefur fundist þessi umræða oft einskorðast við efnislega hluti en ekki andlega og það mun kosta samfélagið gríðarlegar upphæðir ef við gerum ekki vel hér. Sá kostnaður sem færi í að styðja við fólk mun bara flytjast inn í önnur úrræði eða önnur kerfi, hvort sem það eru velferðarkerfin okkar eða önnur kerfi.

Forseti. Það sem ég vildi brýna fyrir okkur í dag er aðallega þetta: Já, þetta er fínt mál. Það eru mörg önnur mál sem við þurfum að hafa í huga. Viðreisn styður allar aðgerðir sem miða að því að koma öryggisneti til Grindvíkinga. Það stendur ekki á okkur að greiða fyrir þessum málum. Við hlustum á þessar raddir og við heyrum í þeim og við munum tala þeirra máli.