Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Mig langar að byrja á að þakka hv. þingmanni þessa góðu yfirferð yfir stóru myndina í tengslum við Grindavík. Ég bað nú um andsvar áður en hv. þingmaður kom að því sem hún síðan endaði á; mikilvægi þess að hlusta og heyra og bregðast við því sem fólk í Grindavík segir okkur, því eins og kom fram hjá hv. þingmanni þá hefur það gert mikið af því síðustu mánuði. Það þarf kannski ekkert rosalega mikla sviðsmyndagreiningu, það þarf ekki einhverja spádómsgáfu til að vita að það þarf að gera meira og það er meira að segja bara hægt að sjá hvað þarf að gera. Það lá fyrir t.d. í febrúar þegar við vorum að afgreiða hér lög um uppkaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík að það væru ákveðnir hópar sem væru út undan. Þetta viðurkenndu allir í þessum sal vegna þess að fólkið í Grindavík var búið að segja það við okkur. Þá hélt ég að væri sameiginlegur skilningur okkar allra, þó að fólk hafi ekki treyst sér til að styðja breytingartillögu hv. þm. Guðbrands Einarssonar um að víkka þau lög aðeins út, en ég skildi það þannig að ríkisstjórnin ætlaði að koma aftur að þessu teikniborði, fylla inn í þær eyður sem þarf að fylla inn í og koma með úrbætur. Í staðinn erum við að fjalla um það frumvarp sem við ræðum hér í dag sem jú, nær utan um hluta atvinnulífsins en rosalega lítinn og ekki endilega fyrirtækin sem eru að fara að fara á hausinn vegna þess að þau eru ekki leyst út úr steinsteypunni sem þau eru föst í. Svo er til umfjöllunar annað mál sem snýst um að framlengja ýmis úrræði til einstaklinga fram að áramótum.
Nú er það þannig að áramótin skipta ríkisreikning miklu máli vegna þess að bókhaldið í excel-skjölunum hugsar þannig, en líf fólks miðar ekki við áramótin. Fjölskyldurnar í Grindavík, ef það er verið að framlengja úrræðin þeirra (Forseti hringir.) á annað borð, af hverju ekki yfir skólaárið eða eitthvað annað sem endurspeglar náttúrlega sveiflu manneskjunnar?