154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[15:21]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Ég veit ekki hvers vegna en mín tilfinning hefur svolítið verið sú að fyrst þegar hamfarirnar dundu yfir þá töluðum við ekki um annað en Grindavík og Grindavík var efst á baugi. Kannski er það hluti af því að búa á Íslandi að við erum með ákveðinn viðnámsþrótt en svo einhvern veginn fjarar undan umræðunni finnst mér. Ég hef talað við Grindvíkinga sem upplifa þetta, að þeir séu að gleymast. Það eru auðvitað önnur mál sem taka við og kannski er hluti af þessu sá veruleiki að hér erum við með ríkisstjórn sem hefur verið heldur of upptekin við að halda sér saman. Það hefur ábyggilega farið mikill tími og mikil orka bara í það verkefni. Hér vorum við með forsætisráðherra sem fór og þá þurfti að koma annarri ríkisstjórn að. Þetta tók tíma og vikur og það eru umræður um stjórnina og hvort hún haldi eða ekki, vantraust eða ekki og þetta allt. Ef ég horfi yfir tímann hér í þinginu frá janúar og fram í júní þá hefur mér fundist þetta sundurlyndi ríkisstjórnarinnar hafa fengið miklu meira vægi og miklu meiri tíma en málefni Grindavíkur og það að styðja raunverulega við fólkið sem einmitt horfir í augun á okkur og segir: Við þurfum aðstoð. Við báðum ekki um þetta í okkar líf. Við viljum búa í Grindavík. Við viljum vera í Grindavík en okkur er bannað að vera í Grindavík. Mér hefur fundist mjög vont að upplifa þetta.