154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[15:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er einmitt þetta grundvallarákall sem hefur komið frá Grindavík frá því að þetta tímabil hófst: Við þurfum aðstoð. Við hér á þingi þurfum að hlusta og heyra og við heyrum úr öllum flokkum, úr hverju einasta sæti hér í sal heyrum við fólk segja: Já, já, auðvitað gerum við allt sem þarf. En ég held að þetta sundurlyndi ríkisstjórnarinnar sem hv. þingmaður nefnir sé einmitt hluti af vandanum. Þau eru svo vön því að vera að togast á um öll mál að þau geta ekki einu sinni sest niður og fyllt í eyðurnar í þessu máli sem við ættum öll að geta verið sammála um. Þau eiga svo erfitt með að vinna í þágu almannahagsmuna vegna þess að þeirra persónulegu sérhagsmunir af því að halda þessum gullbrydduðu sætum hérna undir rassinum á sér trompa allt annað. Þau gleyma stóra verkefninu. Hvernig geta ráðherrarnir sem sitja stundum hérna fyrir aftan okkur sagt að þau ætli að gera allt sem þarf fyrir Grindavík en samt stöndum við hérna vorið 2024 með þessi tvö frumvörp í höndunum, annað sem tekur á pínuponsu hluta af atvinnulífi Grindavíkur og hitt sem snýst um að framlengja í tíma úrræði sem í febrúar við töluðum um að þyrfti að víkka út til að ná utan um stærri hópa samfélagsins? Þetta er ráðaleysi, úrræðaleysi, ég veit ekki hvað á að kalla þetta, skeytingarleysi held ég að við þurfum að fara að kalla þetta vegna þess að það er ekki hægt að segjast ætla að gera allt en gera það svo ekki. Þá ertu bara að ljúga og kannski fyrst og fremst að sjálfum þér. Það er náttúrlega vandi þessarar ríkisstjórnar að þau eru búin að fylla sjálf sig af einhverri ímyndun um það að þau séu miklu betri en þau eru í reynd. Þau eru að ljúga því að sjálfum sér að þau séu í alvöru að gera allt fyrir Grindvíkinga (Forseti hringir.) en í leiðinni eru þau að ljúga að okkur öllum hinum. Og það sem verst er, þau eru að ljúga að Grindvíkingum þegar þau mæta þeim (Forseti hringir.) og segja: Auðvitað gerum við allt fyrir ykkur, við ætlum bara ekki að gera það sem þið eruð að kalla eftir.