154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[15:26]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að orðið sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson var að leita að sé mögulega andvaraleysi vegna þess að ég trúi því auðvitað að allt það fólk sem situr hér inni á Alþingi, hv. þingmenn, ráðherrar og aðrir, vilji gjarnan gera vel. Það er bara svo margt annað sem flækist fyrir og hefur tafið tímann og einhvern veginn afvegaleitt umræðuna. Hér var tekin sú ákvörðun að stofna heilt félag utan um þá ráðstöfun að kaupa upp húsnæði. Grindvíkingar kvarta yfir því að fá ekki skýr svör, að það taki mjög langan tíma að fara í gegnum það kerfi og það virðist vera að báknið hafi svolítið fitnað á kostnað kannski viðnámsþróttar eða þess að geta brugðist hratt við. Við eigum auðvitað fordæmi frá því að það gaus í Vestmannaeyjum. Þá var bara farið af stað í að byggja upp viðlagasjóðshús. Það var farið af stað í aðgerðir sem dugðu til. Við áttum þá reynslu og ég hef alveg staldrað við og spurt hvers vegna sú reynsla hafi ekki verið nýtt að fullu. Af hverju var ekki farið í reynslubankann frá þeim tíma? Ég veit það fyrir víst og ég á vini sem búa í dag í þessum viðlagasjóðshúsum og þau hafa ábyggilega gengið hér kaupum og sölum í nokkur skipti frá því að þau voru byggð fyrst til að grípa Vestmannaeyinga. Mér finnst lykilatriðið hér vera að þegar fólk sem upplifir hluti tjáir sig um þessa hluti þá sé það ekki okkar hlutverk að segja: Já, nei, en sjáðu til. Það er okkar hlutverk að hlusta og bæta um betur.