Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Það er komið að endalokum þessarar umræðu hér í dag og styttist í að málið fari í atkvæðagreiðslu eftir helgi og margt gott verið bent á í umræðunni. Ég ætla að tilkynna í upphafi minnar ræðu að hún verður með þeim stystu sem um þetta mál hafa verið fluttar. Ég ætla að benda á að þessi mál er varða Grindavík, svipað og þar sem dundi á okkur í Covid, þetta hefur um margt verið fyrirmyndarsamstaða bæði meiri hluta og minni hluta á Alþingi. Þetta hefur þjappað fólki saman um góð skref, ekki gallalaus frekar en annað sem í mannheimum þekkist og ég ætla bara að lýsa því yfir að þó að það sé nú dálítið dökkur tónn í ræðum sem hér eru fluttar svona oft og iðulega þá er líka tilefni til að benda á það sem vel er gert. Í svo flóknu máli sem við blasir þegar Grindavík er annars vegar er eðlilega ýmislegt sem tekur lengri tíma en menn hefðu viljað og er ekki fullkomnað. Ég lýsi sérstakri ánægju með það að einstaklingar sem njóta trausts og hafa reynslu af stjórnun og störfum hafa verið skipaðir í framkvæmdanefnd Grindavíkur; Árni Þór Sigurðsson, mætur maður, Guðný Sverrisdóttir og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ. Þetta er fólk sem hefur haldið vel á sínu í gegnum tíðina og ég treysti þeim til að hraða allri framvindu og allri framkvæmd sem verða má til góðs.
Afurðasjóðurinn er eitt af mörgum verkefnum sem við höfum sammælst um hér á Alþingi, vel ígrunduð skref í þágu þeirra sem hafa orðið fyrir þessu. En mér þykir mikilvægt að við áttum okkur líka á því að það eru ekki bara þeir sem búa eða bjuggu í Grindavík sem þurfa að, við skulum segja finna fyrir því sem þarna hefur gerst. Óhjákvæmilegur fylgifiskur eldgosa og þess vegna jarðvarmastróka bara hér við borgarhliðið í Reykjavík, á Hellisheiðinni, Nesjavöllum, allt getur þetta og hefur í tilteknum vindáttum áhrif á heilsu okkar, orku og getu til að mæta örlögum okkar á hverjum degi. Stundum grunar mann að gufurnar sem fylgja eldgosum og jafnvel virkjunum á jarðvarma geti dregið aðeins móðinn úr mannskapnum og þannig dagar eru kannski líka hér inni á þinginu, að menn vilja draga andann djúpt en fá ekki hreina loftið sem þeir eru vanir. Þess vegna þurfum við að vera vel á varðbergi, fylgjast glöggt með á vef Umhverfisstofnunar t.d. sem gjarnan mætti vera skýrari um hvað raunverulega er í gangi á hverju sinni, hvenær við eigum absolút að hafa gluggana okkar lokaða og hvenær við skyldum helst koma okkur kannski bara í frí í annan landshluta. En þetta er svona utan við meginefni þess sem við erum að fjalla um núna á lokametrum þess.
Ég lýsi bara ánægju með Afurðasjóðinn. Ég lýsi ánægju með það að við skulum hafa sammælst um að taka þessi skref. Það er ekkert sjálfsagt að svona hlutir séu gerðir. Í öðrum heimshlutum væri bara alls ekki gripið til neins sambærilegs heldur þeir látnir þjást sem verða fyrir slíkri óáran, slíkum áföllum. Sem betur fer hefur það nú verið einkennandi leiðarstef í okkar samfélagi allt frá landnámi að við tökum utan um hvert annað þegar áföllin ríða yfir og tryggjum það að samfélaginu verði sem best borgið og við gerum eins vel og við mögulega getum. Fyrir það ber okkur að þakka.