154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[15:33]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir góða ræðu og fyrir að koma aðeins með jákvæðnina hér í pontu líkt og hann gerir iðulega. Að sjálfsögðu er það þannig að þegar á okkur dynja áföll þá stöndum við saman sem þjóð. Það höfum við gert og munum gera áfram. En það er samt sem áður þannig að þegar við erum síðan með kerfi sem eru hönnuð til að ná utan um þá þætti sem þarf að hlúa að, þá eru það kerfi sem eru mannanna verk og við þurfum þá að vera gagnrýnin á þau, hvort þau séu að ná utan um veruleika fólks eða ekki, hvort þau séu að grípa einstaklingana sem þurfa á hjálp að halda eða ekki.

Málefnið sem hér er til umræðu er gott. Það er fínt. En það sem ég sakna kannski er að við séum hér með fleiri mál sem ná utan um þessa þætti sem ríkisstjórnin hafði lofað að yrði gripið til. Þá er ég að tala um þá einstaklinga sem hafa verið að segja við okkur þingmenn að þau séu að falla á milli þilja í kerfinu. Þess vegna langaði mig að fá að heyra aðeins hjá hv. þingmanni hans sjónarmið þegar kemur að þessum hópi einstaklinga, hvort hann telji að við séum búin að gera nóg og ef ekki, hvað við ættum þá að gera til að grípa þessa einstaklinga.