154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[15:35]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir sitt innlegg og spurningu. Vissulega er það svo þegar mikið er í fang færst og mikið dynur á að það verður ekki allt lagað eða allt fullkomnað í einu vetfangi. Ég nefndi sérstaklega þá framkvæmdanefnd sem er vel skipuð og ég treysti því að hún muni taka utan um alla þá þætti sem þetta mál varðar, sérstaklega þætti á borð við þá sem hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni sem varða andlega heilsu fólks sem verður fyrir áföllum sem þessum. Það ber ekki að vanmeta. Það ber að huga að því alveg sérstaklega og þá sérstaklega börnunum og þeim sem eru viðkvæmastir í samfélaginu. Ég treysti því að Árni Þór, Guðný og Gunnar, ÁGG-hópurinn, muni rísa undir þeim væntingum sem við gerum til þeirra. Það var vel til fundið að skipa sérstakt stjórnvald í rauninni. Þau hafa heilmikil völd, heilmikið svigrúm til að gera það sem gera þarf. Þau eru nýkomin til starfa og ég óska þeim velfarnaðar og treysti því að þau muni taka á þeim málum og allar ábendingar sem hv. þingmaður og aðrir kynnu að hafa skyldu fara til þeirra milliliðalaust.