Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir svarið. Ég tek heils hugar undir með honum að auðvitað bindum við miklar væntingar og vonir til þessa góða hóps og þess góða fólks sem þar situr. Tíminn er auðvitað þannig að fyrir þau sem standa í þeim sporum að upplifa það að vera kannski ekki búin að fá hér skýr svör um sína framtíð, sína afkomu og sitt skjól, að hver dagur í þeirra lífi er líklega aðeins lengri en í lífi okkar hinna sem förum heim til okkar og sofum í okkar húsi í okkar bæjarfélagi þar sem við kjósum að búa, í öryggi og vissu um okkar afkomu og okkar líf.
Þar sem tíminn er auðvitað lykilbreyta í þessu hjá fólki þá langaði mig að forvitnast hjá hv. þingmanni hvort hann þekkti til þess hvaða tímamörk þessi hópur hefði í sinni skipan. Ég þekki það ekki sjálf, væri forvitin að fá að heyra hvort þingmaðurinn viti hvort þetta sé hópur sem fær nauman tíma til að koma og skila inn tillögum eða langan. Ég ítreka að ég held að fyrir það fólk sem situr heima núna og veit ekki hvernig það á að klára á næstu mánaðamót, vegna aðstæðna sem þau báðu ekki um í sitt líf, þá skipti það máli að hlaupa svolítið hratt. Við kunnum það svo sem, Íslendingar. En það er sem sagt spurningin mín: Veit þingmaðurinn hver tímamörkin eru?