154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[15:39]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Svarið við spurningu hennar er einfalt: Mér er ekki kunnugt um þau tímamörk en ég treysti því að vel vinnandi fólk muni vinna hratt og vel á þeim málum sem þau bera ábyrgð á. Og þau eru fjölmörg. Ég tel alveg rétt að við höldum því fólki við efnið bara með því að senda pósta og SMS eftir atvikum, benda á það sem mætti gera og gerast hratt.

Ég vil geta þess sérstaklega hér að við getum í raun þakkað fyrir að ekki skyldi hafa farið verr. Það er reyndar afar sorgleg staðreynd að einn maður að störfum á vettvangi hvarf hreinlega ofan í jörðina. Megi minning Lúðvíks Péturssonar vera blessuð og fjölskylda hans jafna sig eftir það áfall. En heimamenn sluppu með skrekkinn. Og þó að búsifjar hafi orðið og högg mikil, heimili skemmst og vinna í uppnámi og vinnslustöðvar og atvinnulíf, þá erum við alla vega að gera okkar besta til að styðja við það sem ella hefði farið enn verr. Verkefnið er tiltölulega nýhafið í stóra samhenginu. Megi því vel farnast og öllum sem koma að þeim störfum.

Ég segi enn og aftur að við skulum vera sátt við að við höfum náð samstöðu í þessum sal um allan þann fjölda aðgerða í þágu Grindavíkur og Grindvíkinga sem fyrir liggja. Megi þeim öllum vel farnast.