Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir góða ræðu og vandaða umfjöllun um frumvarpið sem hér er rætt í dag. Þingmaðurinn ræddi hér um tjón innan þéttbýlismarka og þau þröngu skilyrði sem hafa verið sett varðandi fyrirtæki sem eru utan þéttbýlis. Þessi sjóður eða þessi stuðningsúrræði ná ekki til þeirra. Þingmaðurinn sagði jafnframt að þessi fyrirtæki væru auðvitað innan þeirra svæða sem þó eru þannig að starfsemi þeirra hefur verið skert að miklu leyti og væntanlega blasir mikið tjón við hjá þeim. Og auðvitað er þarna líka um að ræða fyrirtæki sem eru þó í einhverri samkeppni innan svæðis og utan.
Það sem vekur forvitni mína og það sem ég væri til í að heyra þingmanninn koma inn á er hvort hann viti hvernig svona ákvarðanir eru teknar þegar það er vá í samfélaginu, þegar það eru náttúruhamfarir og fólk er einhvern veginn að reyna að ná utan um þann veruleika. Hvernig kerfið sem hannað er utan um þau úrræði sem hér eru í boði er búið til með þeim hætti að hér er bara sett eitthvert strik; sumir falla innan kerfis og aðrir utan. Eru einhver rök sem mæla með slíkum vinnubrögðum þegar um er að ræða óvanalegt almannavarnaástand?