154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[16:04]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er einmitt kjarni málsins. Hvaða rök eru fyrir því að tjónið sem verður frá gildistöku laganna til áramóta, að það nái einungis til tjóns er verður innan þéttbýlismarka Grindavíkurbæjar? Ég sé engin rök þar á bak við. Það hefði verið miklu skynsamlegra að hafa breiðara gildissvið hvað varðar landsvæðið sem á að bæta. Ég vil líka benda á umsögn Samtaka atvinnulífsins hvað þetta varðar og einnig umsögn atvinnuteymis Grindavíkurbæjar. Í umsögn SA segir, með leyfi forseta:

„Sérstaklega er tilefni til þess að atvinnuveganefnd skoði hvort ekki sé ástæða til að rýmka gildissviðið svo sjóðurinn nái til allra fyrirtækja innan sveitarfélagsins Grindavíkurbæjar. Er þetta í samræmi við umsögn atvinnuteymis Grindavíkurbæjar.“

Mér finnst alveg með ólíkindum að þetta skuli rata þannig inn í lögin vegna þess að þau virðast ekki hafa kannað málið á neinn hátt. Jú, það þarf að vera eitthvert gildissvið en þá er bara verið að tala um: Jú, við tökum bara þéttbýlið, ekki svæðið fyrir utan. Það eru engin rök þar á bak við. Það á bara að segja: Tjón sem verður vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Það er það sem það gengur út á. Það getur vel verið að það sé langt fyrir utan bæjarmörkin eða hvernig sem það er, þau geta þá sótt um, a.m.k. sent inn umsókn og þá getur nefndin skoðað það sérstaklega. Við verðum að treysta stjórninni og nefndinni sem metur þessar umsóknir, hvort þetta sé bein afleiðing af jarðhræringunum eða ekki. Það er svolítið verið að búa til box sem mjög margir aðilar geta fallið utan við. Við sjáum það t.d. á umsögn Stjörnuhóls, sem er leigufélag, að ljóst er að þar er atvinnustarfsemi sem byggir á útleigu húsnæðis í Grindavík, að (Forseti hringir.) rekstrarstuðningurinn nær ekki til þeirra. Það er náttúrlega mjög sorglegt. (Forseti hringir.) Útleiga íbúðarhúsnæðis og húsnæðis er líka atvinnustarfsemi, það þarf að ná utan um alla, ekki bara suma.