154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[16:09]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir seinna andsvarið. Þetta er kjarni málsins. Mér líður svolítið, þegar ég les þetta frumvarp, eins og við búum í einhverju tugmilljóna samfélagi. Við erum hér að tala um 400.000 manns, það eru tæplega 400.000 manns sem búa á Íslandi, 380 plús, og við þurfum að setja reglur þar sem vandamálið er að koma upp aftur og aftur, það er fólk og það eru fyrirtæki sem lenda milli skips og bryggju þegar við erum að búa til reglur sem eru svo ferkantaðar að fólk fellur út fyrir boxið. Að sjálfsögðu hefði átt að setja lög með stjórn, gera ákveðnar vísireglur, t.d. varðandi Afurðasjóðinn, senda inn umsóknir og ekki hafa þetta innan þéttbýlismarka Grindavíkurbæjar, sleppa því. Og líka að sleppa því að hafa þetta þannig að þetta varði bara óbeint tjón á matvælum og fóðri af völdum hamfara í bænum, þar með talið vegna rýmingaraðgerða stjórnvalda tengdum því. Og jafnvel hefði ég talið eðlilegt að þetta myndi líka ná til tjóns sem á sér stað fyrir gildistöku laganna. Stjórnin myndi bara meta það. Ég efast heldur ekki um, og það er nákvæmlega það sama með einstaklinga og rekstrarstuðning, að það er hægt að meta tjón hvers og eins einstaklings og hvers og eins eiganda á eignum í Grindavík. Það er ekkert svo flókið mál. Þetta eru ekkert það margar eignir. Ef hægt væri að fá 20 manns í að meta það, það myndi taka nokkrar vikur eða kannski nokkra mánuði, þá gætum við fengið niðurstöðu sem myndi ná utan um alla en ekki að vera með reglur þar sem sagt er: Nei, því miður, við verðum að hafna umsókninni, þú getur ekki sótt um, með vísan til þess að þetta er rétt fyrir utan bæjarmörkin, nei það á ekki við. Og það er þetta sem við erum að lenda í aftur og aftur. Það er mjög auðvelt að ná utan um þetta ef vilji er fyrir hendi og þá að greina tjónið, eignatjónið sem allir verða fyrir, bæði húsnæðiseigendur sem eiga húsnæði í leigu og líka þeir sem eiga húsnæði sem þeir eru kannski að láta börnin sín búa í og líka þeir sem eru í leiguhúsnæði. Ég þekki dæmi þess að einstaklingur bjó í tveimur fasteignarnúmerum, hann fær það bara bætt að helmingi. Húsakosturinn hjá þessum einstaklingi var bara þannig að hann bjó í stærra húsi en lögheimili hans var í. (Forseti hringir.) Það var kannski í einu herbergi en þetta var kannski fimm herbergja íbúð. Það er þetta sem við erum alltaf að lenda í og þetta tel ég vera ranga aðferðafræði. (Forseti hringir.) Og þessi Covid-aðferðafræði sem virðist hafa verið beitt, við lærðum ekkert núna við framlagninguna á þessu. (Forseti hringir.) Það er stóra málið. Við verðum að hafa lærdómskúrfu í þessum málum.