154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

við Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[16:12]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Það hafa verið mjög góðar og mikilvægar ræður haldnar hér í tengslum við stuðning við Grindvíkinga en það hefur líka verið bent á þau fjölmörgu göt og annað sem felast í þeim aðgerðum sem farið var í. Ég ræddi það hér í andsvörum fyrr í dag við hv. þm. Guðbrand Einarsson að eflaust væri kominn tími til þess að við bæðum um skýrslu um það hvað hefði verið gert, hversu mikið af því hefði verið notað og hversu margir hafi verið að falla á milli í hinum ýmsu kerfum sem við erum búin að búa til. Mig langaði bara að nota þetta tækifæri og fara í ræðu hér í lok umræðunnar um þetta mál og hvetja sem flesta aðra þingmenn til að vera með á beiðni um slíka skýrslu. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur að við séum óhrædd við að biðja um gögn og fá þau og vera dugleg við að rýna strax þær aðgerðir sem við erum í. Þá er ég ekki endilega að tala um aðgerðir almannavarna. Það er alveg sérkapítuli út af fyrir sig og þau eru þegar byrjuð að rýna sitt en þegar kemur að aðgerðum stjórnvalda þá þurfum við að byrja að horfa aðeins á það. Það er ekki til þess að finna einhverja sökudólga hér og þar, það er til þess hreinlega að átta okkur á því hvernig við getum gert betur í framhaldinu. Það er eitthvað sem við þurfum alltaf að vera tilbúin til að gera.